Erlent

23 mafíósar handteknir

Lögreglan á Sikiley hefur handtekið 23 manneskjur sem grunaðar eru um „mafíuglæpi“ eins og það er orðað í erlendum fréttamiðlum. Þar á meðal eru tvær konur sem sakaðar eru um þátttöku í að stjórna mafíuhópi í borginni Trapaní á Sikiley í félagi við mafíuforingja sem sitja í fangelsi eins og sakir standa. Aðgerð lögreglunnar kemur í kjölfar tveggja ára rannsóknar þar sem mikilvægum upplýsingum var m.a. aflað með hlerunarbúnaði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×