Viðskipti innlent

Lítið launaskrið

Laun hækkuðu lítillega í júlímánuði samkvæmt launavísitölunni sem Hagstofa Íslands birti nú í morgun og greint er frá í Morgunkorni Íslandsbanka.

Þannig hækkuðu laun um 0,1% í júlí frá fyrri mánuði. Í júnímánuði var launavísitalan óbreytt. Þessi þróun undafarna mánuði virðist benda til þess að launaskrið sé lítið um þessar mundir. Undanfarna 12 mánuði hafa laun hækkað um 6,9% og er 12 mánaða takturinn óbreyttur frá fyrri mánuði.

Árstakturinn í launavísitölunni hefur komið hratt niður síðustu mánuði, en í marsmánuði nam árshækkun launa 12,1%. Núna yfir sumarmánuðina hefur árstakturinn hinsvegar lækkað skarpt enda eru nú að detta út úr 12 mánaða taktinum miklir hækkunarmánuðir frá því fyrir rúmu ári þegar ákvæði kjarasamninga tóku gildi.

Þannig hækkaði launavísitalan um 6,1% yfir þriggja mánaða tímabil í fyrrasumar þegar almenn hækkun á launatöxtum upp á 4,25% tók gildi auk þess sem 10 þúsund króna álag á orlofsuppbót var til útborgunar og áhrif 50 þúsund króna eingreiðslu tóku að koma fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×