Sigur Skálmaldar Gunnar Leó Pálsson skrifar 2. janúar 2014 12:30 Meðlimir Skálmaldar sáttir eftir þrenna tónleika í Eldborgarsalnum í Hörpu. Mynd/Lalli Sig „
Þetta ár hefur verið alveg frábært,“ segir Snæbjörn Ragnarsson bassaleikari Skálmaldar. Þeir léku eins og flestir vita með Sinfóníuhljómsveit Íslands á þrennum tónleikum í Eldborgarsalnum í Hörpu í lok nóvembermánaðar en uppselt var á alla tónleikana. Tónleikarnir voru teknir upp á hljóði og mynd og gefnir út þann 18. desember í 4.700 eintökum en á hádegi á Þorláksmessu var hvergi hægt ná sér í eintak af tónleikunum. „Þetta er alveg lyginni líkast og erum við mjög þakklátir fyrir viðtökurnar,“ segir Snæbjörn Ragnarsson, Skálmaldarmeðlimur. Í tilefni útgáfunnar settust meðlimir Skálmaldar niður fyrir framan Skífuna í Kringlunni og árituðu plötuna.„Við sátum í tvær klukkustundir fyrir framan Skífuna og árituðum á fullu. Við höfum örugglega talað við svona þrjú til fjögur hundruð manns, þetta var lyginni líkast,“ útskýrir Snæbjörn. Röðin sem varð til við áritunina er talin afar sjaldgæf og sögðu starfsmenn Skífunnar sjaldan hafa séð annað eins mannhaf í kringum slíka áritun. Aðspurður um samstarfið við Sinfóníuna segir Snæbjörn allt hafa gengið rosalega vel. „Haraldur Sveinbjörnsson kann sitt fag, hann talar bæði rokktungumálið og klassíska tungumálið. Hann vann virkilega gott starf í útsetningunum og það var einnig frábært að vinna með Bernharði Wilkinsyni stjórnanda Sinfóníunnar.“ Fyrir utan Sinfóníusamstarfið hefur árið verið gott hjá Skálmaldarmönnum. „Ætli við séum ekki búnir að spila á svona áttatíu til hundrað tónleikum á árinu.“ Sveitin fór á Evróputúr í október og nóvember og einnig í tónleikaferðalag um Ísland. Þá fengu þeir afhenda gullplötu fyrir plötuna Börn Loka fyrir skömmu. „Við förum svo á stóra sviðið í Borgarleikhúsinu á árinu, sagan Baldur verður sett upp þar. Ég get lítið sagt um það eins og er en það kemur í ljós á næstunni, það verður allavega rokkað í Borgarleikhúsinu,“ bætir Snæbjörn við. Baldur er fyrsta breiðskífa Skálmaldar. Skálmöld stefnir á að gefa út plötu fyrir næstu jól. „Við ætlum að halda áfram að vera duglegir á næsta ári og ég yrði virkilega hissa ef það kæmi ekki út plata frá okkur fyrir næstu jól.“Það var öllu tjaldað til í EldborginniMynd/Lalli Sig
Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Áskorun Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Lífið ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Fleiri fréttir Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Sjá meira