Stelpuleg, sjálfsörugg og þokkafull Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 3. október 2019 08:00 Hátt tagl,kattaraugu og lærahá stígvél einkenna stílinn hennar Ariönu Grande en einnig stutt pils og kjólar, blúndutoppar, rasssíðir háskólabolir og tilkomumiklir, kvenlegir kjólar. NORDIC PHOTOS/ GETTY
Hver gengur þarna eftir lífsins stræti? Á ótrúlega háum skóm? Með hátt, sítt tagl og ögn af yfirlæti, á lærasíðum háskólabol? Það er söngfuglinn fagri, sjálf Ariana Grande. Ariana Grande hefur lagt heiminn að fótum sér með stíl sem þykir í senn stelpulegur, glaðvær og daðurslegur. Hvunndags er klæðaburður hennar sáraeinfaldur en þeim mun íburðarmeiri þegar hún tjaldar öllu til á tónlistarsviðinu. Til að stela stíl Ariönu Grande þarf að eiga stóra háskólaboli í fataskápnum, mínípils, uppháar buxur og pils, daðurslega kjóla, lærahá stígvél, munstraða magaboli, blúndutoppa og húðlitaða eða hvíta þykkbotna strigaskó.Ariana Grande seen on the streets of Manhattan on August 17, 2018 in New YorkKann öll tískutrix í bókinni Ariana ákvað snemma hvernig hún vildi líta út á vegi frægðar og frama. Hún er ófeimin við að sýna vöxtinn og þykir óaðfinnanleg til fara, hvort sem hún er á leið í búðaráp eða á stóra sviðið. Vörumerkið er hátt tagl og síðir háskólabolir sem hún klæðist eins og kjólum við upphá stígvél eða strigaskó. Ariana er ekki há í loftinu, aðeins 153 sentimetrar. Til að virðast hærri klæðist hún himinháum hælum eða strigaskóm með þykkum botni. Lærahá stígvél eru í dálæti en slík stígvél geta auðveldlega látið lágvaxnar konur virka enn styttri. Því reddar Ariana með því að sýna svolítið hold á milli stígvéla og flíka, því það lengir leggina til muna. Mínípils og örstuttir kjólar eru sömuleiðis þekktir fyrir að lengja fótleggi og þar kann Ariana öll tískutrixin í bókinni og lengir kroppinn enn meir með því að klæðast pilsum og buxum sem ná hátt í mittið og gera hana enn lengri og grennri en ella.Ariana Grande poses backstage at the 2018 iHeartRadio Wango TangoUppáhaldslitir Ariönu eru ljósir pastellitir í bláu, bleiku og sykurpúðahvítu. Hún notar skó númer 36, kjólanúmerið 2 og elskar að klæðast aðsniðnum kjólum og mínípilsum með A-sniði eins og algengt er með skautapils. Einnig stuttum toppum úr blúndum og magabolum með glaðlegum mynstrum. Ariana er líka hrifin af settum með sama munstri en undanfarið hefur hún sést oftar klæðast leðri sem þykir sýna að fatastíllinn er að þroskast.Mamma er fyrirmyndin Ariana hefur verið nefnd drottning kattaraugna og kyssilegra vara. Á uppvaxtarárunum dreymdi hana um að líta út eins og mamma sín og Scary Spice, en mamma hennar málar alltaf á sig kattaraugu.Ariana Grande attends the American Music Awards at Microsoft Theater 2016 in Los Angeles.Ariana hefur verið óspör á fegurðarleyndarmál sín. Hún passar vel upp á góða húðumhirðu og notar rakakrem undir ljóst púður. Förðun er látlaus en augnmálningin dramatísk. Hún notar brúntóna augnskugga og blautan, svartan augnblýant sem hún teygir út til að skapa tælandi kattaraugu. Til að kóróna augnmálninguna notar hún löng, fölsk augnhár sem hún setur á nokkur lög af maskara og hefur látið hafa eftir sér að í raun væri nóg að klæðast fölskum augnhárum einum saman til að líta fullkomlega út. Til að þrýsta munninum í fagran stút notar hún varalitablýant. Til að gera hátt taglið spennandi notar Ariana mismunandi hárliti og hárlengingar sem og hárspangir, snúða, fléttur og toppa.
Birtist í Fréttablaðinu Tíska og hönnun Mest lesið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Lífið samstarf Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Lífið Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Lífið Fleiri fréttir Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Sjá meira