Innlent

Litla Hraun hafi verið í heljargreipum Annþórs og Barkar

Birgir Olgeirsson skrifar
Annþór Kristján Karlsson í héraðsdómi árið 2008.
Annþór Kristján Karlsson í héraðsdómi árið 2008.

Litla Hraun á að hafa verið í heljargreipum Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birgissonar þegar þeir afplánuðu þar dóm árið 2012. Þetta kom fram í máli lögmanns íslenska ríkisins, Guðrúnar Sesselju Arnardóttur, við aðalmeðferð í skaðabótamáli Annþórs gegn íslenska ríkinu sem fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Annþór hefur krafist þess að íslenska ríkið greiði honum 64 milljónir í bætur fyrir að hafa verið vistaður á öryggisgangi Litla Hrauns á meðan rannsókn á dauða fangans Sigurðar Hólms Sigurðssonar stóð yfir. Annþór og Börkur voru grunaðir um að hafa átt þátt í dauða Sigurðar. Leiddi rannsóknin til þess að Annþór og Börkur voru ákærðir fyrir alvarlega líkamsárás sem leiddi til dauða Sigurðar. Þeir voru sýknaðir í héraði og Hæstarétti.

Annþór og Börkur voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í 21 dag en fyrir það fengu þeir dæmdar bætur upp á 1.680 þúsund krónur. Þá hafði fengist heimild fyrir að hlera þá á öryggisganginum í viku og til að hlusta á samtöl þeirra í síma í mánuð. Fyrir það fengu þeir 800 þúsund í bætur.

Þórhallur Haukur Þorvaldsson, lögmaður Annþórs.Vísir/Vilhelm

Einkamálið nú snýst því um vistun á öryggisgangi fangelsisins sem stóð yfir í eitt og hálft ár, eða 541 dag. Gerir Annþór þá kröfu að fá greiddar 100 þúsund krónur fyrir hvern dag sem hann var á öryggisganginum sem gera 54 milljónir og 100 þúsund krónur. Að auki gerir hann kröfu um bætur upp á 10 milljónir króna vegna vanvirðandi hegðunar sem hann varð fyrir vegna þessa.

Tilraun til að komast framhjá úrskurði dómara

Þórhallur Haukur Þorvaldsson, lögmaður Annþórs, sagði þess vistun á öryggisganginum vera jafn íþyngjandi úrræði og gæsluvarðhald. Er það mat Þórhalls að með þessari tilhögun hafi yfirvöld komist hjá því að fá úrskurð frá dómara um áframhaldandi gæsluvarðhald og þannig farið á svig við þær ströngu kröfur sem gerðar eru um gæsluvarðhaldsvistun.



Sagði Þórhallur að fangelsismálayfirvöld hefðu borið við að kvartanir hefðu borist undan hegðun Annþórs og Barkar í aðdraganda dauða Sigurðar Hólms. Þær hafi verið dregnar fram til að réttlæta að þeir yrðu vistaðir á öryggisgangi fangelsisins, en ekki rannsókn á dauða samfanga þeirra.

Engin gögn um ógn

Lögmaður Annþórs sagði engin gögn styðja þær fullyrðingar yfirvalda að öðrum föngum hafi staðið ógn af Annþóri og Berki. Enginn hafi sett inn formlega kvörtun, einungis væri hægt að vísa í tölvupóst fangavarða og óljósar yfirlýsingar. Var einnig vísað í meinta aðild að líkamsárás sem átti sér stað í apríl árið 2012, mánuði áður en Sigurður Hólm fannst látinn í klefa sínum.



Sagði Þórhallur að væntanlega myndi íslenska ríkið skýla sér á bak við það að fangar hafi verið hræddir við Annþór og Börk og ekki viljað segja frá. Ekki hafi verið tekin nein skýrsla og engin gögn sem liggja því til stuðnings. Þórhallur sagði um hreinan fyrirslátt að ræða með það eitt að markmiði að halda Annþór og Berki á öryggisganginum vegna rannsóknar þessa sakamáls sem þeir voru síðar sýknaðir af.

Guðrún Sesselja Arnardóttir, lögmaður íslenska ríkisins. Vísir/Vilhelm

Föngum hafi stafað ógn af Annþór og Berki

Guðrún Sesselja sagði Annþóri hafa verið gert að sæta vistun á öryggisgangi Litla Hrauns vegna hegðunar sinnar í fangelsinu. Hann hafi verið með ógnandi hegðun í afplánun, grunaður um að beita samfanga ofbeldi og hótunum ýmiskonur. Fangar sem voru með honum á gangi hafi stafað mikil ógn af honum og nánast enginn fangi sem treysti sér að vera í kringum þá Annþór og Börk.



Vísaði Guðrún í skýrslur frá deildarstjóra í fangelsinu sem sagði ástandið þar ekki gott á þessum tíma.

Tölvupóstur mánuði fyrir andlátið

Áður en Sigurður Hólm lést var til skoðunar að vista þá Annþór og Börk á öryggisganginum. Vísaði Guðrún Sesselja til tölvupóstar frá forstjóra Fangelsismálastofnunar frá 18. Apríl 2012 þess efnis, sem var sendur mánuði áður en Sigurður lést 17. maí sama ár. Þegar grunur beindist að aðild þeirra að dauða Sigurðar hafi ekki annað verið hægt en að bregðast við því með því að vista þá á öryggisganginum.



Sagði Guðrún að ástandið á Litla Hrauni hefði verið slæmt. Nánast allir fangar hafi óttast Annþór og Börk og fangelsið verið í heljargreipum vegna þeirra. Við því hafi þurft að bregðast.

Höfðu aðgang að tómstundum, námi og vinnu

Benti Guðrún á að Annþór hefði haft aðgang að tómstundum og námi, sem hann stundaði, sem og vinnu, sem hann hafnaði. Þá hafði hann heimild til að fá gesti í heimsókn. Var heimsóknartíminn fyrst um sinn ein og hálf klukkustund en mjög fljótlega lengdur í tvær klukkustundir. Fékk Annþór að jafnaði tvær heimsóknir í viku. Þá var hlaupabretti flutt inn á ganginn.



Hún hafnaði því að Annþór hafi verið hafður í langvarandi einangrun sem verði jafnað við gæsluvarðhald. Þrír klefar voru á ganginum þar sem að minnsta kosti einn fangi var til viðbótar. Þeir fangar sem eru beittir einangrun eru lokaðir inni í klefa allan sólarhringinn og hafa ekki möguleika á námi, vinnu og tómstundum.

Ekki ákærðir að ósekju

Þá hafi ákæran gegn þeim ekki verið að ósekju. Bæði héraðsdómur og Hæstiréttur töldu rannsóknarhagsmuni vera undir þegar þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald og ekki að ástæðulausu að grunur beindist að þeim. Þeir voru í ellefu mínútur með Sigurði Hólm áður en hann fannst látinn.

Varðandi áhrif á andleg heilsu Annþórs benti Guðrún á að engin gögn hafi verið lögð fram um hana sem sýndi fram á að andleg heilsa hans hafi verið verri eftir þessa afplánun eða fyrri afplánanir, eða þá verri en hjá öðrum föngum.



Krafðist Guðrún sýknu í málinu fyrir hönd íslenska ríkisins.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×