Matur

Sörurnar hennar Sylvíu Haukdal - Uppskrift

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Sörurnar eru ómissandi fyrir jólin.
Sörurnar eru ómissandi fyrir jólin. Vísir/Sylvía Haukdal

Bakað með Sylvíu Haukdal eru nýir þættir á Stöð 2 Maraþon. Í fyrsta þættinum deilir hún dásamlegri uppskrift að sörum fyrir jólin. Þessar eru fullkomnar fyrir baksturinn um helgina og bragðast ótrúlega vel.

Sylvía Haukdal er ótrúlega klár þegar kemur að kökubakstri og kökuskreytingum. Hún heldur úti fallegu kökubloggi ásamt því að starfa hjá Sætum syndum. Þættirnir hennar verða sýndir á Stöð 2 maraþon í desember.  Í spilaranum hér að neðan má sjá fyrsta þáttinn í heild sinni en uppskrift og aðferð er neðar í fréttinni. Við gefum Sylvíu Haukdal orðið. 

Klippa: Sörur - Bakað með Sylvíu Haukdal

Uppskrift:

Söru skeljar 

250 g möndlumjöl

200 g flórsykur

130 g eggjahvítur

1/4 tsk salt

 

Aðferð:

1. Byrjum á stífþeyta eggjahvíturnar. 

2. Síðan bætum við saltinu saman við og þeytum í um það bil 10 sekúndur.

3. Næst hrærum við möndlumjölinu saman við með sleif.

4. Skeljarnar eru bakaðar við 180 gráður í um það bil 12 mínútur.

Sylvía HaukdalVísir/Sylvía Haukdal

Krem

140 g eggjarauður

330 g smjör (við stofuhita)

130 ml sýróp

3 msk kakó

3 tsk instant kaffi

 

Hjúpur

200 g súkkulaðihjúpur

 

Aðferð:

1. Við byrjum á því að þeyta eggjarauður þar til þær verða ljósar og léttar. Á meðan hitum við sírópið.

2. Næst hellum við sírópinu í mjórri bunum saman við eggjarauðurnar og höldum svo áfram að þeyta þar til blandan fer að kólna.

3. Síðan hrærum við smjör, instant kaffi og kakói saman við og þeytum þar til kremið verður glansandi ljóst og létt.

Samsetning:

1. Sprautum kremi á söruskeljarnar (ég notaði stút Ateco 808) og setjum þær í frysti.

2. Bræðum súkkulaðihjúp yfir vatnsbaði.

3. Að lokum dýfum við sörunum (krem hlutanum) ofan í súkkulaðihjúpinn.

Vísir/Sylvía Haukdal





Fleiri fréttir

Sjá meira


×