Mælt með að einn úr Manson-fjölskyldunni fái reynslulausn Atli Ísleifsson skrifar 4. janúar 2019 11:30 Robert Beausoleil afplánar sinn dóm í fangelsi í Vacaville í Kaliforníu. AP
Nefnd í Kaliforníu, sem metur hvort fangar í ríkinu skuli veitt reynslulausn, hefur nú í fyrsta skipti mælt með að Robert Beausoleil, sem var hluti Manson-fjölskyldunnar svokölluðu, verði veitt reynslulausn. Hann hefur setið í fangelsi í nærri hálfa öld. Hinn 71 árs gamli Beausoleil hlaut á sínum tíma dóm fyrir að hafa drepið tónlistarmanninn Gary Hinman í lok júlí 1969. Þurfti Hinman að sæta pyndingum í þrjá daga þar sem Manson skar meðal annars andlit hans með sverði, áður en hann dó.AP segir frá því að nefndin hafi átján sinnum áður neitað Beausoleil um reynslulausn. Hann var upphaflega dæmdur til dauða árið 1970, en dómnum var breytt í lífstíðarfangelsi þremur árum síðar.Charles Manson árið 1969.Vísir/GettyÁrið 1969 fór Charles Manson fyrir hópi fólks sem fylgdi honum í einu og öllu það sumar fóru fylgjendur Manson á kreik og myrtu alls sjö manns á tveimur dögum.Sjá einnig: Hvar eru hinir meðlimir „Manson-fjölskyldunnar“?Í hópi fórnarlamba Manson og fylgjenda hans var leikkonan Sharon Tate, sem þá var barnshafandi og gengin átta mánuði á leið. Fjórir gestir hennar voru einnig myrtir á heimili hennar og leikstjórans Roman Polanski. Gavin Newsom, verðandi ríkisstjóri í Kaliforníu, gæti enn komið í veg fyrir að Beausoleil verði veitt reynslulausn á næstu mánuðum. Fráfarandi ríkisstjóri, Jerry Brown, hefur ítrekað komið í veg fyrir að fylgjendur Manson fái reynslulausn, en Manson sjálfur dó í fangelsi árið 2017. Beausoleil afplánar sinn dóm í fangelsi í Vacaville, um 75 kílómetrum norðaustur af San Francisco.
Bandaríkin Tengdar fréttir Morðinginn sem drap aldrei neinn Hinn alræmdi og hataði Charles Manson er látinn. Orðspor hans er goðsagnakennt og honum hefur ítrekað verið líkt við djöfulinn sjálfan. Erfitt er að skilgreina glæpi Mansons þar sem ekki er hægt að kalla hann rað- eða fjöldamorðingja 24. nóvember 2017 07:00 Hvar eru hinir meðlimir „Manson-fjölskyldunnar“? Einungis fimm þeirra voru dæmd vegna Tate-LaBianca morðanna. 20. nóvember 2017 21:30 Charles Manson látinn Einhver alræmdasti glæpamaður Bandaríkjanna lést í nótt. 20. nóvember 2017 06:27 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Fleiri fréttir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Sjá meira
Morðinginn sem drap aldrei neinn Hinn alræmdi og hataði Charles Manson er látinn. Orðspor hans er goðsagnakennt og honum hefur ítrekað verið líkt við djöfulinn sjálfan. Erfitt er að skilgreina glæpi Mansons þar sem ekki er hægt að kalla hann rað- eða fjöldamorðingja 24. nóvember 2017 07:00
Hvar eru hinir meðlimir „Manson-fjölskyldunnar“? Einungis fimm þeirra voru dæmd vegna Tate-LaBianca morðanna. 20. nóvember 2017 21:30
Charles Manson látinn Einhver alræmdasti glæpamaður Bandaríkjanna lést í nótt. 20. nóvember 2017 06:27