Innlent

Ellefu mánaða barn greindist með mislinga

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Í tilkynningu landlæknis segir að barnið hafi verið lagt inn á Barnaspítala Hringsins þann 1. mars og heilsast því vel eftir atvikum.
Í tilkynningu landlæknis segir að barnið hafi verið lagt inn á Barnaspítala Hringsins þann 1. mars og heilsast því vel eftir atvikum. vísir/anton brink
Ellefu mánaða gamalt barn greindist síðastliðinn laugardag með mislinga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti landlæknis en þar kemur fram að barnið, sem var óbólusett, hafi verið í sama flugi með Air Iceland Connect frá Reykjavík til Egilsstaða og einstaklingur með smitandi mislinga þann 15. febrúar síðastliðinn.

Í tilkynningu landlæknis segir að barnið hafi verið lagt inn á Barnaspítala Hringsins þann 1. mars og heilsast því vel eftir atvikum.Líkur á frekara smiti frá barninu er ólíklegt en einstaklingar í nánasta umhverfi þess eru bólusettir gegn mislingum.

„Á þessari stundu er ekki vitað um fleiri smitaða einstaklinga en mögulega má búast við smiti fram til 7. mars en þá eru 3 vikur liðnar frá því að einstaklingurinn með mislinga í fyrrgreindri frétt var á ferðalagi bæði erlendis og hér innanlands.

Rétt er að minna á að mislingar eru með mest smitandi sjúkdómum sem þekkjast. Engin meðferð er til við sjúkdómnum og eina fyrirbyggjandi meðferðin felst í bólusetningu sem veitir meira en 95% vörn. Þetta minnir á mikilvægi þess að halda hér uppi góðri þátttöku í bólusetningum.

Bólusetning gegn mislingum er við 18 mánaða og 12 ára aldur. Hægt er að bólusetja börn frá 6 mánaða aldri en vörn bólusetningarinnar er óviss á aldrinum 6−12 mánaða. Litlar líkur eru á vernd ef bólusett er fyrir 6 mánaða aldur,“ segir í tilkynningu landlæknis.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×