Innlent

Sótt­varna­læknir bregst við vegna ebólufar­aldurs í Austur-Kongó

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Neyðarástandi á heimsvísu var lýst yfir vegna ebólufaraldursins í Austur-Kongó í gær.
Neyðarástandi á heimsvísu var lýst yfir vegna ebólufaraldursins í Austur-Kongó í gær. Vísir/Getty
Sóttvarnalæknir mun á næstu vikum ljúka við að endurskoða og uppfæra viðbragðsáætlanir og leiðbeiningar frá 2015 til viðbragðsaðila og almennings vegna ebólusjúkdómsins. Eru viðbragðsaðilar hérlendis hvattir til að gera það sama.

Er þetta gert með það í huga að á næstu vikum er mögulegt að íslenskir aðilar sem sinna neyðaraðstoð á heimsvísu muni koma til með að taka þátt í aðgerðum vegna ebólufaraldursins sem geisar nú í Austur-Kongó.

Neyðarástandi á heimsvísu var lýst yfir vegna faraldursins í gær. Yfirlýsingin kom í kjölfar þess að „tilfelli hafa borist til milljónaborgarinnar Goma á landamærum Austur-Kongó við Rúanda sem er talið auka mjög hættu á að sjúkdómurinn breiðist út bæði innan Austur-Kongó en einnig milli landa. Alþjóðaflugvöllur er í Goma.

Þrátt fyrir sóttkví er vitað um eitt tilfelli tengt þessum faraldri sem ferðaðist frá Norður-Kivu til Úganda í júní sl. og ekki er hægt að útiloka að slíkir atburðir geti átt sér stað út frá Goma, en landamærin við Rúanda eru að hluta til á stöðuvatni sem mögulega torveldar eftirlit með mannaferðum um landamærin,“ að því er segir á vef landlæknis.

Þar má finna nánari upplýsingar um ebólu og svo leiðbeiningar vegna ferða á svæði þar sem ebóla er útbreidd.


Tengdar fréttir

Neyðarástandi á heimsvísu lýst yfir vegna ebólu

Ebólu faraldrinum, sem brotist hefur út í Austur-Kongó, var í dag lýst yfir sem neyðarástandi á heimsvísu af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni eftir að vírusinn smitaðist til borgar þar sem tvær milljónir manna búa.

Ebólusmit í fjölmennri landamæraborg

Yfirvöld í Lýðveldinu Kongó hafa nú staðfest að ebólusmit hafi greinst í borginni Goma í austurhluta landsins í fyrsta sinn, en þar býr rúm ein milljón manna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×