Íslensku stelpurnar skoruðu tíu fyrstu mörkin og rúlluðu upp Bretunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júlí 2019 15:18 Stelpurnar í 19 ára landsliðinu. Mynd/HSÍ
Íslenska nítján ára landslið kvenna í handbolta spilar um fimmta til áttunda sæti í B-deild Evrópukeppninnar eftir 27 marka sigur á Bretum í dag, 39-12, í lokaleik sínum í riðlakeppninni. HK-ingurinn Tinna Sól Björgvinsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með átta mörk en hún skoraði öll mörkin sín í fyrri hálfleiknum. Tinna Sól var valinn besti leikmaður vallarins. Sigurinn tryggði stelpunum þriðja sætið í riðlinum á eftir Serbíu og heimastúlkum í Búlgaríu. Ísland mætir Finnlandi í næsta leik og spilar um fimmta sætið í mótinu vinni liðið hann. Alls skoruðu sex leikmenn íslenska liðsins fjögur mörk eða meira í leiknum en Lena Margrét Valdimarsdóttir var næstmarkahæst með sex mörk og Þóra María Sigurjónsdóttir skoraði fimm mörk. Íslensku stelpurnar höfðu tapað tveimur leikjum í röð en mættu grimmar til leiks í dag og þær bresku áttu aldrei möguleika. Íslenska liðið skoraði tíu fyrstu mörk leiksins og hélt hreinu fyrstu fjórtán mínútum leiksins. Ísland var 18-6 yfir í hálfleik og var 30-9 yfir þegar fimmtán mínútur voru eftir. Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins eftir nokkrar sekúndur og gaf síðan fimm stoðsendingar á félaga sína á meðan íslenska liðið komst í 10-0. Tinna Sól Björgvinsdóttir var komin með fimm mörk eftir aðeins átta mínútna leik. Það var strax ljós í hvað stefndi og íslensku stelpurnar bætti við forystuna allan leikinn. Á endanum munaði 27 mörk á liðunum tveimur.Mörk íslenska liðsins í leiknum: Tinna Sól Björgvinsdóttir 8 Lena Margrét Valdimarsdóttir 6 Þóra María Sigurjónsdóttir 5 Katla María Magnúsdóttir 4 Auður Ester Gestsdóttir 4 Berta Rut Harðardóttir 4 Anna Karen Hansdóttir 3 Birta Rún Grétarsdóttir 2 Harpa María Friðgeirsdóttir 2 Alexandra Líf Arnarsdóttir 1
Handbolti Mest lesið Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Íslenski boltinn Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Íslenski boltinn Freyr þakklátari fyrir ótrúlegustu hluti: „Búið að vera erfitt“ Fótbolti Mike Tyson frestar bardaganum á móti Jake Paul Sport McIlroy fékk löggu til að afhenda konu sinni skilnaðarpappírana Golf Kane skrifaði undir samning á lokahófi Grindavíkur Körfubolti Karabatic skaut niður markvörðinn í síðasta skoti ferilsins Handbolti Vatnsskortur í Stokkhólmsmaraþoninu Sport Sjáðu markaveisluna og magnaða endurkomu Framara á móti FH Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo grét eftir tap í gær Fótbolti Fleiri fréttir Karabatic skaut niður markvörðinn í síðasta skoti ferilsins Tveir Færeyingar til silfurliðsins Íslandsmeistarinn Aron er hvergi nærri hættur Gummi Gumm velur Höllu Hrund í liðið sitt Magdeburg meistari eftir stórsigur í Mannheim Guðjón Valur kom Gummersbach í Evrópukeppni Óðinn og félagar náðu ekki að tryggja sér titilinn Mikkel eftir tapið á móti liði Gumma Gumm: Þurfum að horfa inn á við Guðmundur orðlaus „Mig langaði bara ógeðslega mikið að verða Íslandsmeistari“ „Hann er bara svindkall í þessari deild“ „Ég held að ég hafi sjaldan verið jafn glaður“ Uppgjör: Afturelding - FH 27-31 | FH-ingar Íslandsmeistarar Twitter um langþráðan FH-titil: „Það sem ég elska þetta“ Erfitt kvöld hjá okkar mönnum Strákarnir hans Guðmundar knúðu fram oddaleik Sigvaldi og Bjarki Már meistarar Strákarnir okkar með Slóveníu, Kúbu og Grænhöfðaeyjum í riðli á HM Afturelding getur knúið fram oddaleik í kvöld „Stórkostlegt fyrir íslenskt íþróttalíf“ Tryggvi Þórisson sænskur meistari með Sävehof Tinna Sigurrós í Stjörnuna Tjörvi til Bergischer Ekki tilbúinn að ræða hversu margir kveðja Val Utan vallar: Þegar góðu gæjarnir koma fyrstir í mark Ómar Ingi með fjörutíu mörk í síðustu þremur leikjum „Gerist ekki grátlegra“ „Finnst þetta geðveikur sigur“ „Geggjað að sjá Símon setja hann í lokin“ Hetjan Símon: „Helvítis léttir“ Sjá meira