Rændu bæjarstjóranum og drógu hann eftir götunni Andri Eysteinsson skrifar 9. október 2019 19:05 Frá Las Margaritas í Chiapas-héraði Mexíkó. Facebook/LasMargaritas Chiapas
Ellefu voru handteknir í mexíkóska bænum Las Margaritas eftir að hafa rænt bæjarstjóranum Jorge Escandon Hernandez, bundið hann aftan í bifreið og dregið hann eftir götum bæjarins. Independent greinir frá. Hinir handteknu eru sagði koma úr hópi ósáttra bænda frá nágrannabæ Las Margaritas, Santa Rita Invernadero sem eru ósáttir við að Hernandez hafi ekki staðið við gefin kosningaloforð. Segja mótmælendur að Hernandez hafi ekki staðið við orð sín um að laga vegi milli bæjanna og að tryggja aðgengi að rafmagni og drykkjarvatni. Hernandez var handsamaður af hópi mótmælenda vopnuðum kylfum og grjóti. Bundu þeir bæjarstjórann því næst við pallbíl og keyrðu af stað með hann í eftirdragi. Eftir að hafa verið bjargað af lögreglu flutti hann yfirlýsingu þar sem hann sagðist líta atburði dagsins alvarlegum augum og sakaði áhrifamenn í nágrannabænum Santa Rita Invernadero um að standa að baki árásinni. Þá sagði Hernandez að honum yrði ekki ógnað með þessum hætti og kvaðst ætla að sækja þá ellefu sem handteknir voru til saka og kæra þá fyrir mannrán og morðtilraun.
Mexíkó Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Sjá meira