Innlent

Samstaða um að mótmæla vígvæðingu á norðurslóðum

Sylvía Hall skrifar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir flokkinn leggja áherslu á að vígvæðingu sé haldið utan við uppbyggingu á hernaðarmannvirkjum.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir flokkinn leggja áherslu á að vígvæðingu sé haldið utan við uppbyggingu á hernaðarmannvirkjum. Aðsend
Á flokksráðsfundi Vinstri grænna sem fer nú fram á Hótel Skaftafelli í Öræfum var aukinni vígvæðingu í Norðurhöfum og á norðurslóðum mótmælt einróma. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður flokksins, segir það vera ljóst að flokkurinn hafi alltaf verið mótfallinn aukinni vígvæðingu á þessu svæði.

Í ályktun flokksráðsins sem samþykkt var í hádeginu var kallað eftir pólitískri og almennri umræðu um aukin hernaðarleg umsvif á Suðurnesjum. Flokksráðið áréttaði að aukin vígvæðing stuðlaði að meiri ófriði og hafi einnig í för með sér stórt kolefnisfótspor, sem væri olía á eld þeirrar ógnar sem steðjar að heiminum vegna loftslagsbreytinga.

Þingmenn sátu fyrir svörum á flokksráðsfundinum í morgun.Aðsend

Hamfarahlýnun stærsta áskorunin 

„Okkar afstaða í þessum málum er sú að við leggjumst gegn allri vígvæðingu á norðurslóðum og höfum lagt mikla áherslu á það að þeim sé haldið utan við uppbyggingu á hernaðar- og varnarmannvirkjum. Það sama má auðvitað segja almennt um Norðurhöf þar sem við sjáum auðvitað mjög aukna umferð ýmiskonar farartækja sem eru í hernaðarlegum tilgangi,“ segir Katrín í samtali við fréttastofu.

Loftslagsmálin og hamfarahlýnun af þeirra völdum voru einnig á dagskrá flokksráðsins og segir ráðið það vera brýnasta pólitíska verkefni samtímans að sporna við þeirri þróun og grípa til aðgerða. Aðgerðir gegn loftslagsbreytingum séu leiðarstefið í allri pólitískri stefnumótun Vinstri grænna samkvæmt ályktun flokksráðsins.

Samhliða aðgerðum í loftslagsmálum ályktar flokksráðið að staðið verði vörð um velferð almennings og tryggt að aðgerðir gegn loftslagsbreytingum verði ekki til þess að auka á ójöfnuð heldur verði það gert með skýrri forgangsröðun í þágu velsældar og breyttri hugsun í ríkisrekstri.

Frá flokksráðsfundinum í Öræfum.Aðsend

Brýnt að ljúka breytingum á lögum um jarðakaup 

Meðal þess sem flokksráðið kemur inn á í ályktun sinni eru breytingar á lögum og reglum um jarða- og fasteignaviðskipti hér á landi. Það sé nauðsynlegt að heimildir séu til staðar til að takmarka eignarhald og stýra auðlindanýtingu.

„Í því samhengi er nauðsynlegt að samþykkt verði ákvæði um þjóðareign á auðlindum í stjórnarskrá,“ segir í ályktuninni.

Í ályktun flokksráðs var einnig fagnað langþráðri friðlýsingu Jökulsár á Fjöllum, sem hefur verið baráttumál Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs frá upphafi.

Í gær tilkynntu ritari flokksins og varaformaður, þau Edward Huijbens og Elín Oddný Sigurðardóttir, að þau myndu ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Það verður því breyting í forystu flokksins á komandi landsfundi í október. Flokksráðsfundi lýkur nú síðdegis með göngu um þjóðgarðinn í Skaftafelli undir leiðsögn staðkunnugra flokksráðsfulltrúa.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×