
Lítið lært
Þetta átti samt ekki að vera hægt. Litið aftur til ársins 2013, þegar erlend staða þjóðarbúsins var neikvæð um þúsund milljarða og raunverulegar áhyggjur voru um sjálfbærni skuldastöðunnar ef illa færi við losun hafta, áttu fáir von á þessum árangri. Þá einskorðaðist leið sumra, einkum stjórnmála- og embættismanna, við það að fara bónleiðina til Evrópska seðlabankans og slá þar risalán í evrum til að hleypa krónueignum erlendra kröfuhafa úr landi. Sem betur fer var önnur leið farin. Vel heppnuð áætlun um afnám hafta, byggð á sérsniðnum innlendum lausnum, breytti stöðunni á einni nóttu þegar kröfuhafar samþykktu að framselja krónueignir að virði meira en 500 milljarðar endurgjaldslaust til ríkisins – og um leið tóku væntingar innlendra og erlendra fjárfesta, ásamt fyrirtækjum og almenningi, stakkaskiptum gagnvart framtíð hagkerfisins.
Nú telja hins vegar sumir að á sama tíma og þessi umskipti hafa orðið á hagkerfinu þá hafi umræðan um þriðja orkupakkann opnað upp á gátt spurninguna um hvort Ísland eigi heima í ESB. Þetta er furðulegt stöðumat. Verkefnið er að verja og betrumbæta EES-samninginn, okkar mikilvægasta alþjóðasamning, gegn þeim öflum sem nú skynja að þau kunni að hafa pólitíska stundarhagsmuni af því að grafa undan honum. Það er aftur á móti sannarlega ekki að setja enn á ný aðild að ESB á dagskrá, sem myndi valda djúpstæðum ágreiningi í samfélaginu, og þá um leið upptöku evru, sem væri meiriháttar glapræði. Stundum mætti halda að þeir hinir sömu, sem ætti að vera kunnugt um mikla og afgerandi andstöðu þjóðarinnar gegn slíkri vegferð, hafi lítið lært af reynslu síðustu ára heldur snúist málið orðið meira nánast um þráhyggju en raunhæft mat á því hvar íslenskum hagsmunum sé best borgið. Ísland, hvar hagkerfið hvílir á fáum stoðum sem kallar á sveigjanlegt gengisfyrirkomulag og á því fátt sameiginlegt með evrusvæðinu, á ekkert erindi í ESB.
Eftir fordæmalausa efnahagsuppsveiflu hefur þjóðarbúið sjaldan staðið á sterkari stoðum. Sú staðreynd að Ísland er orðið að stórum lánveitenda við útlönd er aðeins eitt, ásamt meðal annars myndarlegum gjaldeyrisforða og litlum skuldum ríkissjóðs, af styrkleikamerkjum hagkerfisins. Ólíkt mörgum Evrópuríkjum, sem hafa yfir að ráða takmörkuðum úrræðum með vextina við núllið og eru föst í spennitreyju óburðugs myntbandalags, erum við vel í stakk búin til að takast á við skammvinnan efnahagssamdrátt. Við skulum nýta okkur þá stöðu, í stað þess að þrátta um eitthvað sem seint mun verða.
Skoðun

Lýðræðið er farið – er of seint að snúa við?
Einar G. Harðarson skrifar

Er gagnlegt að kunna að forrita á tímum gervigreindar?
Henning Arnór Úlfarsson skrifar

Málþóf og/eða lýðræði?
Elín Íris Fanndal skrifar

Umdeildasti fríverslunarsamningur sögunnar?
Arnar Þór Ingólfsson skrifar

Ísafjarðarbær í Bestu deild
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Gylfi Ólafsson skrifar

Þjóðarmorð í beinni
Arnar Eggert Thoroddsen skrifar

Allt þetta máttu eiga ef þú tilbiður mig
Birgir Dýrfjörð skrifar

Atvinnufrelsi!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Að mása eða fara í golf
Jón Pétur Zimsen skrifar

Leiðréttum kerfisbundið misrétti
Jónína Brynjólfsdóttir skrifar

Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Sparnaðarráð fyrir ferðalagið
Svandís Edda Jónudóttir skrifar

Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín
Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar

Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram
Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon skrifar

Samráðsdagar á Kjalarnesi
Ævar Harðarson skrifar

Skýr og lausnamiðuð afstaða Framsóknar til veiðigjalda
Ingibjörg Isaksen skrifar

Að mása sig hása til að tefja
Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar

Sjónarspil í Istanbul
Gunnar Pálsson skrifar

Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar

Sjálfboðaliðinn er hornsteinninn
Hannes S. Jónsson skrifar

Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Gangast við mistökum
Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar

Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu
Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar

Að apa eða skapa
Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar

Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía?
Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar

Lífsnauðsynlegt aðgengi
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hvers vegna var Úlfar rekinn?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar