Bílar

Volkswagen ætlar að kynna 34 nýja bíla á næsta ári

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Volkswagen setur stefnuna hátt í framtíðarplönum sínum.
Volkswagen setur stefnuna hátt í framtíðarplönum sínum. Vísir/Volkswagen

Þýski framleiðandinn ætlar sér að kynna 34 nýja bíla á næsta ári, þar af eru tvær nýjar viðbætur í ID raf-línuna ásamt sex öðrum rafbílum.

Ætlunin er að kynna ID 3 á sumarmánuðum ársins 2020. Þar skömmu síðar verður ID Next kynntur til sögunnar, sem á að vera miðlungs stór jepplingur. Hann var kynntur sem ID Crozz á hugmyndastigi. Hann byggir væntanlega á ID 4 grunninum og á að hefja innreið á markaði í Evrópu, Kína og Norður-Ameríku.

Aðrir rafbílar sem kynna skal á næsta ári eru t.d. nýr Golf GTE sem á að fara í sölu í sumarbyrjun.

Enn hafa ekki verið gerð skil öllum 34 bílunum sem á að setja á markað á næsta ári. Þó hefur Volkswagen sagt að 12 þeirra verði jeppar eða jepplingar. Hér að neðan má sjá myndband af ID 3.

Lokatölur eru ekki komnar í hús en Volkswagen reiknar með að vera að skila met hagnaði í ár. Þrátt fyrir að sala hafi dalað undanfarið. Volkswagen hefur aukið hlutdeild sína á minnkandi bílamarkaði í heiminum.

Ralf Brandstatter, rekstrarstjóri Volkswagen segir að 2019 „verði mjög gott ár“ hjá framleiðandanum.

Brandstatter bætti svo við að „áframhaldandi endurskipulagning á kjarnastarfsemi fyrirtækisins, þar með talin breytt áhersla út í framtíðina og gríðarlegur árangur jepplinga sé lykilatriði í þessum góða árangri.“ Hann vísar þar meðal annars til þess að Volkswagen ætlar að leggja mikla áherslu á rafbíla á næstu árum.


Tengdar fréttir

Nýr Golf kynntur

Áttunda kynslóðin af Volkswagen Golf mun koma á göturnar á næsta ári. Hann verður einungis í boði í fimm dyra útgáfu og verður þónokkuð uppfærður frá því sem áður hefur sést.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×