Skoraði í síðasta deildarleiknum og síðasta landsleiknum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. nóvember 2019 19:00
Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði bæði í síðasta deildarleiknum og síðasta landsleiknum á glæsilegum ferli.Markadrottningin úr Vestmannaeyjum tilkynnti í dag að hún hefði lagt skóna á hilluna. Á síðasta tímabili skoraði Margrét Lára 15 mörk í 17 leikjum í Pepsi Max-deild kvenna. Fimmtánda mark hennar á tímabilinu og jafnframt síðasta deildarmark hennar á ferlinum kom í 3-2 sigri Vals á Keflavík í lokaumferðinni 21. september. Með sigrinum tryggði Valur sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil síðan 2010. Margrét Lára skoraði alls 207 mörk í 143 leikjum í efstu deild á Íslandi. Hún er önnur tveggja leikmanna sem hafa skorað 200 mörk eða meira í efstu deild kvenna hér á landi. Hin er Olga Færseth sem skoraði 269 mörk. Margrét Lára lék sinn 124. og síðasta landsleik þegar Ísland rúllaði yfir Lettland, 0-6, í undankeppni EM 8. október. Hún kom inn á sem varamaður á 66. mínútu og skoraði sjötta mark íslenska liðsins í uppbótartíma. Margrét Lára skoraði einnig eftir að hafa komið inn á sem varamaður í fyrsta landsleiknum sínum, 14. júní 2003. Þá var hún aðeins 16 ára. Eyjakonan skoraði alls 79 mörk fyrir íslenska landsliðið. Enginn landsliðsmaður Íslands, hvorki í karla- eða kvennaflokki, hefur skorað fleiri landsliðsmörk.
EM 2021 í Englandi Pepsi Max-deild kvenna Tengdar fréttir Margrét Lára leggur skóna á hilluna Markahæsti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins frá upphafi hefur lagt skóna á hilluna. 26. nóvember 2019 14:19 Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira
Margrét Lára leggur skóna á hilluna Markahæsti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins frá upphafi hefur lagt skóna á hilluna. 26. nóvember 2019 14:19