Skoðun

Væru beljur sérstök þjóð...

Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar
Mál málanna eru loftslagsmál. Öll ríki í heiminum velta þessu fyrir sér enda er sjálf plánetan í húfi. Næstu 30 árin mun mannkyninu fjölga um 2 milljarða einstaklinga, úr tæpum 8 milljörðum manns í tæpa 10 milljarða. Til að mæta þeirri fjölgun, sem nemur tæplega öllum núverandi íbúafjölda Kína og Indlands, þarf heilmikla viðbótarfæðu.

1. Í skýrslu milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar er talið nauðsynlegt að Vesturlandabúar neyti frekar fæðu úr jurtaríkinu til þess að sporna við loftslagsbreytingum enda er kjötneysla orðin of mikil.

2. Þar kemur einnig fram að um fjórðungur allrar losunar gróðurhúsalofttegunda megi rekja til matvælaframleiðslu og landnýtingar henni tengt. Af losun vegna matvælaframleiðslu eru um 60% vegna dýraafurða.

3. Væru kýr sérstök þjóð væru þær í þriðja sæti yfir mestu framleiðendur gróðurhúsloftstegunda samkvæmt The Economist, á eftir Kína og Bandaríkjunum.

4. Eigi að ná loftslagsmarkmiðum er því nauðsynlegt að draga úr neyslu dýraafurða. Það hefur aukist að fólk tileinki sér grænmetis- og grænkeramataræði (vegan) en sums staðar er kjötneysla að aukast, eins og í Kína.

5. Gríðarleg notkun á vatni fylgir iðulega kjötframleiðslu ásamt mikilli landnýtingu, eyðingu skóga og náttúrulegs umhverfis. Bætt auðlindanýting og lægra kolefnisspor vegna innfluttra matvæla er því stór hluti af nauðsynlegri neyslubreytingu mannkyns.

6. Ýmislegt annað en aðgerðir gegn hamfarahlýnun og bætt nýting auðlinda mælir með aukinni neyslu á grænkerafæði. Má þar nefna heilsufarsástæður en ég vil einnig draga fram siðferðisrök, ekki síst í ljósi dýravelferðar en aðbúnaðar húsdýra er oft skelfilegur við fjöldaframleiðslu þessara dýra.

7. Dýravelferð og hagsmunir neytenda eru eitt af hlutverkum hins opinbera.

8. Hið opinbera hefur einnig margs konar skyldum að gegna þegar kemur að framboði og eftirspurn eftir matvælum. Stjórnvöld styrkja ýmsa matvælaframleiðslu með beinum og óbeinum hætti en þau gegna einnig veigamiklu hlutverki þegar kemur að fræðslu um neyslu matvæla, vörumerkingum, tollum, bættu heilsufari og lýðheilsu. Þá standa stjórnvöld einnig fyrir innkaupum á fæði, eins og í skólum, stofnunum og fyrirtækjum.

9. Þótt valfrelsi neytenda verði áfram fyrir hendi þá er augljóst að óbreytt neyslumynstur gengur ekki til lengdar. Þar á meðal er mjög mikilvægt að huga miklu betur að velferð dýra.

Höfundur er alþingismaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Sjá meira


×