Lífið

Brunuðu á McDonald's á sérútbúnum mótorsófa

Stefán Árni Pálsson skrifar
Collin Randle bauð á rúntinn.
Collin Randle bauð á rúntinn.
YouTube-notandinn Collin Randle er er flugnemi og bauð hann vini sínum á rúntinn á dögunum. Markmiðið var að skella sér á McDonald's og það á heldur einkennilegu faratæki sem Randle hafði sjálfur smíðað.

Saman sátu þeir í sófa með mótor aftan á. Ferðalagið gekk nokkuð vel og voru þeir félagar helst hræddir við það að vera teknir af lögreglunni.

Fjöldinn allur af vegfarendum sáu til þeirra og voru ekki lengi að taka upp símana til að fanga ferðalagið.

Hér að neðan má sjá hvernig til tókst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×