Íslenski boltinn

Fofana farinn frá Víkingi

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Fofana í leik gegn FH fyrr í sumar
Fofana í leik gegn FH fyrr í sumar vísir/vilhelm
Pepsi Max deildarlið Víkings hefur losað sig við Gínuemanninn Mohamed Dide Fofana en hann var á láni hjá Víkingum frá norska B-deildarliðinu Sogndal.

Íþróttafréttamaðurinn Tómas Þór Þórðarson segir frá þessu í hlaðvarpi Fótbolta.net.

Fofana hefur spilað átta leiki fyrir Víkinga í Pepsi Max deildinni í sumar auk eins leiks í bikarnum en hann var ekki í leikmannahópi liðsins í 3-2 sigri á Breiðabliki í gær.

Víkingar eru í 10.sæti Pepsi Max deildarinnar með sextán stig eftir fjórtán umferðir, jafnmörg stig og KA-menn sem eru í fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×