Zlatan stóð við stóru orðin og skoraði fullkomna þrennu | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. júlí 2019 12:31 Zlatan er 16 marka maður á tímabilinu. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic skoraði þrennu þegar Los Angeles Galaxy vann Los Angeles FC, 3-2, í grannaslag í MLS-deildinni í nótt.Zlatan talaði digurbarklega í aðdraganda leiksins og var lítt hrifinn af því þegar honum var líkt við Carlos Vela, leikmann Los Angeles. Eins og svo oft áður stóð Zlatan við stóru orðin og skoraði „fullkomna“ þrennu í leiknum; með hægri og vinstri fæti og skalla. Vela kom Los Angeles yfir með marki úr vítaspyrnu á 4. mínútu. Fjórum mínútum síðar jafnaði Zlatan með glæsilegu marki. Svíinn lyfti þá boltanum yfir varnarmann gestanna og skoraði svo með góðu skoti. Á 56. mínútu skoraði Zlatan sitt annað mark með skalla eftir fyrirgjöf frá Diego Musetti. Á 70. mínútu skoraði Zlatan svo sitt þriðja mark með vinstri fótar skoti fyrir utan teig. Mörkin hans má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan. Vela minnkaði muninn í 3-2 þegar sjö mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma en nær komst Los Angeles ekki. Vela er markahæstur í deildinni með 20 mörk. Zlatan kemur næstur með 16 mörk. Þrátt fyrir tapið er Los Angeles enn á toppi Vesturdeildarinnar. LA Galaxy er í 2. sætinu, níu stigum á eftir grönnum sínum.
Fótbolti Tengdar fréttir Zlatan hraunar yfir MLS: Ég er eins og Ferrari innan um Fiat bíla Sænski markahrókurinn Zlatan Ibrahimovic er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum. 19. júlí 2019 08:00 Gamli Arsenal maðurinn markahæstur í bandarísku deildinni Í deild með Zlatan Ibrahimovic og Wayne Rooney innanborðs er einn maður með yfirburðarforystu á markalistanum. 15. júlí 2019 15:30 Mest lesið Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Í beinni: Lokaumferðin í enska | Hvaða lið verður meistari? Enski boltinn Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Guðni Valur Norðurlandameistari Sport Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Manchester City - West Ham | City með pálmann í höndunum Í beinni: Brighton - Man. Utd. | United mætir Brighton í kveðjuleik De Zerbis Í beinni: Arsenal - Everton | Stelur Arsenal titlinum? Í beinni: Liverpool - Wolves | Kveðjuleikur Klopps Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Í beinni: Lokaumferðin í enska | Hvaða lið verður meistari? Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Sjá meira
Zlatan hraunar yfir MLS: Ég er eins og Ferrari innan um Fiat bíla Sænski markahrókurinn Zlatan Ibrahimovic er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum. 19. júlí 2019 08:00
Gamli Arsenal maðurinn markahæstur í bandarísku deildinni Í deild með Zlatan Ibrahimovic og Wayne Rooney innanborðs er einn maður með yfirburðarforystu á markalistanum. 15. júlí 2019 15:30