Viðskipti innlent

Sektin á Wow air sögð sýna að viðskiptakerfið virki sem skyldi

Kjartan Kjartansson skrifar
Wow air losað um 278 þúsund tonn af koltvísýringi í fyrra. Gera átti upp losunarheimildir þess vegna hennar í lok apríl.
Wow air losað um 278 þúsund tonn af koltvísýringi í fyrra. Gera átti upp losunarheimildir þess vegna hennar í lok apríl. Fréttablaðið/Ernir
Evrópusambandið leggur meðvitað háar sektir við því að brotið sé gegn reglum viðskiptakerfis með losunarheimildir. Sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun segir að tæplega fjögurra milljarða króna sekt sem lögð var á þrotabú Wow air í dag sýni að kerfi í loftslagsmálum og eftirfylgni með því virki.

Stjórnvaldssekt upp á tæpa 3,8 milljarða króna var lögð á þrotabú Wow air fyrir að vanrækja að standa skil á losunarheimildum fyrir árið 2018 í dag. Þetta er aðeins í annað skiptið sem Umhverfisstofnun sektar fyrirtæki fyrir slíkt brot og er sektin nú sú langhæsta sem stofnunin hefur lagt á.

Flugfélögin eins og ýmis annar iðnaður sem losar gróðurhúsalofttegundir falla undir samevrópskt viðskiptakerfi með losunarheimildir. Með því fá fyrirtækin heimildir til að losa tiltekið magn gróðurhúsalofttegunda sem dragast saman eftir því sem árin líða. Fyrirtækin geta keypt og selt heimildir eftir þörfum en þær verða dýrari með tímanum. Tilgangurinn er að skapa hvata til að fyrirtækin dragi úr losun.

Þeir sem eiga aðild að kerfinu þurfa að gera upp losunarheimildir sínar árlega. Þó að fyrirtækin megi kaupa og selja heimildir sínar þurfa þau að tryggja að þau eigi nægar heimildir fyrir losun sinni þegar kemur að uppgjörinu.

Þannig bar Wow air að standa skil á heimildunum fyrir síðasta ár 30. apríl. Sá frestur kom og fór án þess að fyrirtækið, sem þá var orðið gjaldþrota, gerði heimildirnar upp. Fyrir það lagði Umhverfisstofnun stjórnvaldssektina á þrotabú fallna flugfélagsins. Þrotabúið hefur þrjá mánuði til að kæra ákvörðunina til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Elva Rakel Jónsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun.Fréttablaðið/Stefán

Gera kröfu um tiltekinn fjölda heimilda, ekki fjárhæð

Elva Rakel Jónsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun, segir að sektin sé há að yfirlögðu ráði. Evrópusambandið hafi haft sektirnar háar meðvitað þar sem það telji loftslagsmál stórt mál sem taka þurfi alvarlega. Mikilvægt sé að traust ríki um að fyrirtæki fylgi reglunum og geri upp heimildir sínar.

„Þetta er dæmi um að kerfi í umhverfismálum, í loftslagsmálum, virki sem skyldi. Að eftirfylgni í kerfinu virki,“ segir hún.

Auk sektarinnar þarf þrotabú Wow air að gera upp losunarheimildir fyrir losun félagsins í fyrra. Elva Rakel getur ekki sagt til um hvað það kosti þrotabúið að kaupa losunarheimildir fyrir þau rúmu 278 þúsund tonn af koltvísýringi sem Wow air losaði í fyrra. Losunarheimildirnar séu markaðsvara og þær sveiflist í verði. Stofnunin mun lýsa kröfu í þrotabúið þar sem kveðið verður á um fjölda heimildanna sem þarf að greiða fyrir frekar en tiltekna fjárhæð fyrir þeim.

Sveinn Andri Sveinsson, annar skiptastjóra þrotabús Wow air, sagði Vísi í maí að nokkur þúsund kröfur hefðu þá borist í búið. Þar á meðal er fjöldi launakrafna starfsmanna sem eru forgangskröfur. Hvorki náðist í Svein Andra né Þorstein Einarsson, hinn skipaðan skiptastjóra búsins, við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir

Losun frá stóriðju og flugi jókst í fyrra

Fyrirtæki á Íslandi keyptu tæplega milljón losunarheimildir í fyrra. Losun frá flugi var meira en tvöfalt meiri en losunarheimildir sem flugfélög fengu endurgjaldslaust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×