Innlent

Önnur Catalina lenti óvænt í Reykjavík

Kristján Már Unnarsson skrifar
Katalínan á Reykjavíkurflugvelli í kvöld. Ekkert lát virðist á flugveislunni í borginni þetta sumarið.
Katalínan á Reykjavíkurflugvelli í kvöld. Ekkert lát virðist á flugveislunni í borginni þetta sumarið. Vísir/KMU.
Catalina-flugbátur úr síðari heimsstyrjöld birtist óvænt í Reykjavík síðdegis. Tók hann tignarlegan hring yfir borginni áður en hann lenti á Reykjavíkurflugvelli um hálfsexleytið. Áformað er að vélinni verði flogið áleiðis til Grænlands á morgun.

Flugáhugamenn töldu í fyrstu að þetta hlyti að vera sama Katalína og hafði viðkomu á flugsýningunni fyrir hálfum mánuði á leið sinni vestur um haf en væri núna á leið til baka frá Bandaríkjunum. Þetta er hins vegar önnur vél, smíðuð árið 1943, fyrir kanadíska flugherinn, en sú fyrri er frá árinu 1941 og sú elsta flughæfa sem til er.

Svo skemmtilega vill til að þessi, rétt eins og sú fyrri, var einnig staðsett á Reykjavíkurflugvelli á stríðsárunum, frá 1943 til 1945. Þessi náði þá að granda einum þýskum kafbáti, U-342, suðvestur af landinu þann 17. apríl árið 1944. Sú fyrri grandaði þremur kafbátum við Ísland. 

Líklegt er að fara þurfi marga áratugi aftur í tímann til að finna dæmi um tvær Katalínur millilenda í Reykjavík á sama sumri. Sjaldgæft er orðið að svo fágætum forngripum sé flogið yfir Atlantshafið enda eru aðeins um tuttugu eintök eftir í heiminum í flughæfu ástandi. Á undan þessum kom Catalina síðast til landsins sumarið 2012 en þá hafði slík vél ekki sést í Reykjavík á þessari öld.

Catalina aftur komin á sinn gamla heimavöll 76 árum síðar. Áformað er að flugbátnum verði flogið áfram vestur um haf á morgun.Vísir/KMU.
Koma Katalínunnar í dag var óvænt og var ekki óskað eftir því að hún fengi afgreiðslu hérlendis fyrr en í morgun. Sex manns eru um borð en vélin ber skrásetningarnúmerið N9767. Verið er að ferja hana frá Frakklandi til vesturstrandar Bandaríkjanna en í þessum áfanga var hún að koma frá flugvellinum í Wick í Skotlandi. 

Vélin var áður í eigu sérstaks sjóðs um varðveislu hennar og hefur verið staðsett á flugvelli suðaustur af París en var nýlega seld til einstaklings í Bandaríkjunum. Nýi eigandinn er um borð og kvaðst hann í samtali við fréttamann á Reykjavíkurflugvelli í kvöld vera að ferja hana til nýrra heimkynna í Oregon. Þar verður hún höfð til sýnis og flogið á flugsýningum en um sögu hennar má nánar fræðast hér.

Áhöfnin hyggst hvílast í Reykjavík í nótt. Á morgun áformar hún að fljúga vélinni til Narsarsuaq, síðan til Goose Bay og um Ontario áfram til Oregon.

Catalina-flugbátar mörkuðu djúp spor í flugsögu Íslands, eins og sagt var frá í þessari frétt Stöðvar 2 frá árinu 2012:


Tengdar fréttir

Flugkappar í útsýnisflugi með Catalina flugbáti

Þrír flugkappar fengu að fara í útsýnisflug með Catalina flugbáti yfir Reykjavík í dag. Kapparnir eiga það sameiginlegt að hafa flogið slíkum vélum þegar þær voru notaðar til farþegaflugs hér á landi á árunum eftir stríð.

Catalina markaði djúp spor í flugsögu Íslands

Íslenskir flugáhugamenn fá langþráðan draum uppfylltan á Reykjavíkurflugvelli um helgina; að skoða Catalina-flugbát en þessar vélar hafa markað hvað dýpst spor í íslenska flugsögu. Íslendingar kynntust Catalinum fyrst á stríðsárunum þegar þær gegndu lykilhlutverki í hernaði Bandamanna gegn kafbátum Þjóðverja á Atlantshafinu.

Loftbelgurinn flaug bara örstutt í kvöld

Loftbelgurinn, sem kominn er til landsins vegna flugsýningarinnar í Reykjavík á morgun, fór aftur á loft í kvöld, í tengslum við beina útsendingu í fréttum Stöðvar 2.

Katalínan lendir á Þingvallavatni

Áhöfn Catalina-flugbátsins, sem lenti í Reykjavík í dag, eftir nærri sex tíma flug frá Skotlandi, ákvað óvænt á fjórða tímanum að fara í útsýnisflug um suðvesturhornið.

Þristarnir streyma inn til Reykjavíkur

Alls fjórtán flugvélar frá stríðsárunum, svokallaðir þristar, millilenda á Íslandi næstu tvo sólarhringa á leið sinni frá Bandaríkjunum til Evrópu til að minnast innrásarinnar í Normandí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×