Erlent

Ellefu manns myrtir í skotárás í Virginia Beach

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá vettvangi í Virginia Beach.
Frá vettvangi í Virginia Beach. vísir/ap
Að minnsta kosti ellefu manns voru myrtir og sex særðus í skotárás í borginni Virginia Beach í Bandaríkjunum í dag. Að sögn lögreglu er árásarmaðurinn látinn en ekki hefur verið gefið upp hvernig hann lét lífið.

Árásarmaðurinn, sem var borgarstarfsmaður, lét til skarar skríða í húsasamstæðu þar sem meðal annars má finna höfuðstöðvar lögreglunnar í Virginia Beach og skrifstofu borgarstjórnar. Lögreglan telur að hann hafi verið einn að verki.

Borgarstjóri Virginia Beach, Robert M. Dyer, segir daginn þann sorglegasta í sögu borgarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×