Gullaldarlið KR í sérflokki á Íslandi Kristinn Páll Teitsson skrifar 6. maí 2019 11:00 KR er búið að vinna sex titla í röð. fréttablaðið
KR er Íslandsmeistari í körfubolta árið 2019 eftir 98-70 sigur á ÍR í oddaleik um titilinn á laugardaginn. Þetta er 18. titill KR sem er komið eitt í efsta sætið yfir flesta meistaratitla og tók með því fram úr Njarðvík. Á sama tíma lengist 42 ára bið ÍR eftir meistaratitli um eitt ár hið minnsta en ljóst er að Breiðhyltingar hafa úr nógu að byggja fyrir næsta ár eftir þetta tímabil. Alls var þetta sjöundi titill KR síðustu tólf ár og kom eftir sigur í oddaleik á heimavelli í þriðja skiptið á síðustu tíu árum. KR-liðið virðist þrífast best undir sviðsljósinu og sýndi á löngum köflum allar sínar bestu hliðar um helgina gegn ÍR. Breiðhyltingum tókst að halda í við KR í upphafi leiksins en KR með Michele Di Nunno fremstan í flokki náði góðu forskoti í öðrum leikhluta og stakk af í þeim þriðja. Það fór svo að KR var búið að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í upphafi fjórða leikhluta og reynslumikið lið KR tókst að halda liði ÍR vel í skefjum. ÍR varð fyrir áfalli í aðdraganda leiksins þegar það kom í ljós að Kevin Capers, besti leikmaður liðsins var handleggsbrotinn. Hann þurfti því að fylgjast með úr borgaralegum klæðum af varamannabekknum í gær. Fyrir vikið hvarf mikil ógn úr sóknarleik ÍR og reyndist fjarvera hans ÍR dýr. „Auðvitað er maður svekktur en á sama tíma er ég afar stoltur af strákunum. Ef maður talar frá hjartanu erum við ekki með besta leikmannahópinn en samt vorum við einum leik frá því að vinna titilinn. Við söknuðum Kevin í kvöld, lykilmennirnir okkar þurftu að spila meira en ég hefði kosið og það tók á. Heilt yfir var þetta gott tímabil, frá því að ég tók við liðinu fyrir fjórum áðan síðan höfum við tekið eitt skref í einu í rétta átt og ég er spenntur fyrir því að ræða við stjórnina og undirbúa næsta tímabili,“ sagði Borce Ilievski, þjálfari ÍR að leikslokum.Óli Stef, Bóas og fleiri góðir í búningsklefa KR-inga.mynd/stöð 2 sportMeiri pressa í ár Gleðin skein úr augum Inga Þórs Steinþórssonar, þjálfara KR í leikslok. Hann tók við uppeldisfélaginu sínu af Finn Frey Stefánssyni síðasta sumar og voru það ansi stórir skór að fylla í. Þetta var annar meistaratitill Inga Þórs með KR-liðið, nítján árum eftir að hann gerði KR að meisturum í fyrsta sinn sem þjálfari. „Það er eins og að bera saman epli og appelsínur, maður getur ekki gert upp á milli barnanna sinna,“ sagði Ingi Þór glaðbeittur þegar Fréttablaðið bað hann um að bera saman titlana tvo. „Þegar ég vinn fyrsta titilinn með KR árið 2000 var ég ungur strákur sem var búinn að gera ágætlega með yngri lið í KR. Ég var óskrifað blað hvað ég gæti gert í meistaraflokki en í dag þekkir maður reynsluna af því að vinna titla og tapa þeim. Maður lærir mikið af því að tapa leikjum. Það var auðvitað meiri pressa fyrir þetta tímabil, að taka við liði sem eru fimmfaldir meistarar og eiga að halda því áfram. Það er allt öðruvísi en að koma inn og hafa engu að tapa eins og fyrir nítján árum síðan.“ Aðspurður sagðist Ingi lítið hafa hugsað út í þá pressu sem fælist í því að taka við liði KR eftir fimm meistaratitla í röð síðasta sumar. „Þegar ég hugsa út í það núna þá, ómeðvitað, velti ég mér ekkert upp úr þessu þegar ég tók við. Við töluðum aldrei um þessa pressu, maður veit af þessari kröfu og lönguninni hjá KR en við framkvæmdum bara hluti og töluðum um það sem skipti máli,“ sagði Ingi sem sagði þakklæti koma fyrst í huga þegar hann var beðinn um að lýsa tilfinngunni. „Það er erfitt að lýsa þessu, það er fyrst og fremst þakklæti til allra sem komu að þessu og þessi tilfinning er komin til að vera í smá tíma.“ KR liðið var lengi af stað og bjuggust eflaust ekki margir við því í febrúar að meistararnir myndu endurtaka leikinn um vorið. „Það voru miklar breytingar á liðinu, það voru menn að koma seint inn og við skiptum um erlendan leikmann á meðan önnur lið voru búin að fullmóta liðið sitt. Sem betur fer er mikill þroski, mikil reynsla og margir leiðtogar í liðinu og okkur tókst að finna lausnina sem við vorum að leita að.“ KR ákvað um mitt tímabil að sækja Michele Di Nunno í stað Dino Stpcic. Di Nunno fór á kostum í oddaleiknum og réðu ÍR-ingar ekkert við hann. „Hann kom með það sem okkur vantaði, bæði til að bera boltann upp og til að skotið ljósin út þegar það þurfti. Við þurftum að hafa smá taum á honum en hann nýttist okkur afar vel. Hann er ákveðinn X-factor sem getur búið til sitt eigið skot,“ sagði Ingi sem var ánægður að fá framlag frá flestum leikmönnum liðsins. „Alla úrslitakeppnina voru það einhverjir leikmenn sem áttu stóra leiki. Emil var frábær um helgina, Finnur, Helgi og Björn áttu sína leiki þar sem þeir skyldu að. Jón Arnór átti sigurkörfu í Keflavík og Pavel var með varnartilþrif í einvíginu gegn Keflavík. Svo setti Kristófer niður stór víti í fjórða leik gegn ÍR. Þetta small allt saman og það er ástæðan afhverju KR er meistari. Svo má ekki gleyma þeim sem voru ekki á gólfinu allan tímann, menn eins og Sigurður Þorvaldssonar með alla sína reynslu sem kom með góða punkta. Það er erfitt fyrir þessa keppnismenn að sætta sig við lítið hlutverk en þeir tóku því með sæmd,“ sagði Ingi sem hrósaði þeim sem komu að körfuboltanum í KR. „Orkan í húsinu, einbeitingin hjá mönnum og undirbúningurinn hjá öllum, frá þjálfarateymi til stjórnarinnar, það var allt upp á tíu. Hér hafa menn gert þetta áður og það var ró yfir mannskapnum þrátt fyrir aðstæður í staðin fyrir stress. Það er búið að sterka hefð hjá KR.“
Dominos-deild karla Reykjavík Mest lesið Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Handbolti Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Fótbolti Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumarfrí Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Þreföld tvenna Jokic heldur Denver á lífi Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér KKÍ horfir til framtíðar Hnéskel Franks Arons brotnaði Wembanyama snéri aftur og átti stórleik „Um leið og ég sá hann fara ofan í fór mér að líða betur“ Áfall fyrir Valsmenn: Frank Aron fór sárþjáður af velli Uppgjörið: Valur - Grindavík 79-72 | Baráttuglaðir Valsmenn jöfnuðu einvígið Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Jokic rekinn út úr húsi og Denver á bjargbrúninni Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Davíð Tómas segir flautukörfu Hilmars Smára löglega: „Ekki skref“ Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Sjáðu ótrúlega flautukörfu Hilmars Smára í framlengingu gegn Tindastól Uppgjörið: Stjarnan 105-103 Tindastóll | Í kjörstöðu eftir flautukörfu í framlengdum leik Áttu vart orð yfir tilþrifum í Garðabæ: „Þetta var rosalegt“ Jakob og Linards framlengja veru sína í KR Ótrúlegur LeBron leiddi Lakers til sigurs „Ég má ekki segja leyndarmál“ Sindri einum leik frá úrslitaeinvíginu Sjá meira