Körfubolti

Fyrsta konan sem stýrir körfuknattleiksdeild Njarðvíkur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristín Örlygsdóttir, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur.
Kristín Örlygsdóttir, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur. mynd/njarðvík
Kristín Örlygsdóttir er nýr formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur. Hún er fyrsta konan sem gegnir formannsembættinu í sögu deildarinnar.

Kristín tók við formannskeflinu af Friðriki Ragnarssyni á aukaaðalfundi körfuknattleiksdeildarinnar í gærkvöldi. Auk Friðriks gengu þau Páll Kristinsson, Jakob Hermannsson, Róbert Þór Guðnason og Berglind Kristjánsdóttir úr stjórn.

Brenton Birmingham, einn besti erlendi leikmaður sem hefur leikið hér á landi, er meðstjórnandi í stjórn körfuknattleiksdeildarinnar.

Karlalið Njarðvíkur endaði í 2. sæti Domino's deildarinnar en féll úr leik fyrir ÍR, 3-2, í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar. Þá komust Njarðvíkingar í bikarúrslit þar sem þeir töpuðu fyrir Stjörnumönnum.

Kvennalið Njarðvíkur endaði í 4. sæti 1. deildar í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×