Körfubolti

Wade með 30 stig í síðasta heimaleiknum og enn er smá von um uppklapp í úrslitakeppninni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dwyane Wade faðmar Derrick Jones Jr. eftir leikinn í nótt.
Dwyane Wade faðmar Derrick Jones Jr. eftir leikinn í nótt. AP/Lynne Sladky
Miami Heat hélt mikið kveðjukvöld fyrir goðsögnina sína Dwyane Wade í NBA-deildinni í nótt og Wade svaraði með einum besta leik sínum í langan tíma. Dirk Nowitzki átti líka sinn langbesta leik í síðasta heimaleik sínum með Dallas og hálfgert varalið Golden State Warriors var nógu gott til að vinna Pelíkanana. Þrenna frá Russell Westbrook og sigurkarfa Paul George tryggðu Oklahoma City Thunder sigur á Houston Rockets.





Kvöldið snerist allt um Dwyane Wade fyrir og eftir leik og hann sá sjálfur til þess að það snerist líka um hann á meðan á leiknum stóð. Dwyane Wade skoraði 30 stig í 122-99 sigri Miami Heat á Philadelphia 76ers í síðasta deildarleik Wade í Miami.

Wade kom inn í byrjunarliðið og skoraði þessi 30 stig á 35 mínútum. Hann hitti úr 10 af 23 skotum og var líka með 3 fráköst og 3 stoðsendingar. Goran Dragic einbeitti sér að gefa boltann og var með 13 stig og stig en næststigahæstur hjá Miami var Bam Adebayo með 19 stig.

Þökk sé þessum sigri á einu af sterkustu liðunum í Austurdeildinni þá á Miami Heat enn smá von um að komast í úrslitakeppnina á kostnað Detriot Pistons. Bæði liðin eiga einn leik eftir og Miami þarf að ná betri úrslitin en Pistons í þeim til að komast upp fyrir þá og í áttunda og síðasta sætið.









Dirk Nowitzki skoraði 30 stig fyrir Dallas Mavericks í 120-109 sigri á Phoenix Suns í síðasta heimaleiknum hans en hann staðfesti það eftir leikinn að hann væri að hætta eftir þetta tímabil. Dallas spilaði upp á Nowitzki í byrjun og hann skoraði 10 fyrstu stig liðsins í leiknum.

Nýliðinn Luka Doncic var með þrennu í leiknum en hann skoraði 21 stig, tók 16 fráköst og gaf 11 stoðsendingar. Þetta var áttunda þrennan hans á leiktíðinni og hann er aðeins einni frá félagsmeti Jason Kidd frá 1995-96.





DeMarcus Cousins var með 21 stig og 12 fráköst þegar hálfgert varalið Golden State Warriors vann 112-103 útisigur á New Orleans Pelicans. Kevin Durant (veikur) og Klay Thompson (hvíld) spiluðu ekki með Golden State og þá spilaði  Stephen Curry aðeins fyrstu níu mínúturnar eftir að hafa tognað lítillega á ökkla. Damion Lee skoraði 20 stig fyrir Golden State og Quinn Cook var með 19 stig.

Detroit Pistons vann upp 22 stiga forskot Memphis Grizzlies og tryggði sér lífsnauðsynlega 100-93 sigur en með honum heldur liðið frumkvæðinu í baráttunni um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppni Austurdeildarinnar. Detroit tryggir sér sætið með sigri í New York í nótt.

Andre Drummond var með 20 stig og 17 fráköst fyrir Detroit liðið og Ish Smith bætti við 22 stigum. Blake Griffin var aftur á móti aðeins með 5 stig og 2 fráköst á 18 mínútum og var að glíma við meiðsli á vinstra hné.





Paul George tryggði Oklahoma City Thunder 112-111 sigur á Houston Rockets með því að skora þriggja stiga körfu 1,8 sekúndum fyrir leikslok. Thunder liðið vann upp 14 stiga forskot í fjórða leikhlutanum.

Russell Westbrook var með flotta þrennu en hann skoraði 29 stig, tók 12 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Þetta var 33. þrennan hans á leiktíðinni en hann endar hana með þrennu að meðaltali í leik.

James Harden skoraði 39 stig fyrir Houston liðið og Chris Paul var með 24 stig. Liðið datt niður í þriðja sætið í Vesturdeildinni eftir þetta tap.





Donovan Mitchell skoraði 46 stig þegar Utah Jazz vann 118-108 sigur á Denver Nuggets, Rudy Gobert bætti við 20 stigum og 10 fráköstum, Derrick Favors skoraði 16 stig og Joe Ingles var með 10 stig og 13 fráköst. Utah Jazz vann átta síðustu heimaleiki sína í deildarkeppninni.

Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Los Angeles Lakers - Portland Trail Blazers    101-104   

Oklahoma City Thunder - Houston Rockets    112-111   

Utah Jazz - Denver Nuggets    118-108   

Dallas Mavericks - Phoenix Suns    120-109   

Chicago Bulls - New York Knicks    86-96   

Minnesota Timberwolves - Toronto Raptors    100-120   

New Orleans Pelicans - Golden State Warriors    103-112   

Miami Heat - Philadelphia 76ers    122-99   

Cleveland Cavaliers - Charlotte Hornets    97-124   

Detroit Pistons - Memphis Grizzlies    100-93   

Washington Wizards - Boston Celtics    110-116   

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×