Auðvelt hjá Liverpool í Portúgal

Anton Ingi Leifsson skrifar
Virgil og Salah fagna í kvöld.
Virgil og Salah fagna í kvöld. vísir/getty
Liverpool er komið í undanúrslit Meistaradeildarinnar þar sem þeir mæta Barcelona en Liverpool lenti í engum vandræðum með Porto í kvöld. Lokatölur 4-1 sigur þeirra rauðklæddu.

Liverpool vann fyrri leikinn 2-0 og var í frábærri stöðu fyrir síðari leikinn í kvöld en það var Porto sem byrjaði leikinn af miklum krafti og voru óheppnir að komast ekki yfir.

Það voru hins vegar gestirnir frá Englandi sem komust yfir með sinni fyrstu sókn í leiknum. Sadio Mane skoraði þá eftir misheppnað skot Mo Salah en í fyrstu virtist Mane vera rangstæður. Svo var ekki.

Eftir það var ljóst að einvíginu yrði lokið. Porto þurfti því að skora fjögur mörk og Mo Salah tvöfaldaði forystuna á 65. mínútu eftir frábæra stungusendingu frá Trent Alexander-Arnold.

Porto minnkaði muninn tveimur mínútum síðar með skallamarki frá Eder Militao en Roberto Firmino skoraði þriðja mark Liverpool á 77. mínútu. Það mark kom einnig með höfðinu.

Fjórða og síðasta mark Liverpool gerði Virgil van Dijk, einnig með skalla, sex mínútum fyrir leikslok en Hollendingurinn skoraði eftir hornspyrnu James Milner. Lokatölur 4-1 og samanlagt 6-1.

Liverpool mætir Barcelona í undanúrslitunum.







Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira