Körfubolti

Byrjuðu þriðju úrslitakeppnina í röð á tapi á heimavelli

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nú reynir á Birnu Valgerði Benónýsdóttur og félaga í Keflavíkurliðinu.
Nú reynir á Birnu Valgerði Benónýsdóttur og félaga í Keflavíkurliðinu. Vísir/Vilhelm
Kvennalið Keflavíkur er lent 1-0 undir á móti Stjörnunni í undanúrslitum Domino´s deildar kvenna í körfubolta en Keflavíkurstelpurnar ættu að vera farnar að þekkja þá stöðu mjög vel.

Þetta er þriðja úrslitakeppnin í röð þar sem Keflavík tapar fyrsta leiknum á heimavelli. Það gerðist einnig á móti Skallagrími 2017 og á móti Val í fyrra.

Keflavík sló Skallagrímsliðið út eftir oddaleik fyrir tveimur árum en í fyrra varð liðið að sætta sig að detta út fyrir Val eftir að hafa í framhaldinu lent 2-0 undir í einvíginu.

Þetta þarf ekki að boða slæma hluti því í síðustu tvö skipti sem Keflavíkurkonur hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn (2013 og 2017) þá hafa þær byrjað úrslitakeppnina á tapi á heimavelli. Í báðum þeim skiptum þá sóttu Keflavíkurkonur sigur á útivöll í öðrum leiknum og komust síðan í úrslitaeinvígið eftir sigur í oddaleik á heimavelli.

Þetta er samt að verða svolítið skrýtin hefð hjá kvennaliði Keflavíkur að byrja úrslitakeppnina svona illa.

Í raun hafa Keflavíkurkonur tapað fyrsta leik á heimavelli í úrslitakeppnin fimm sinnum frá og með árinu 2012. Sex heimaleikir og fimm töp eins og sjá má hér fyrir neðan.

Keflavík bíður líka enn eftir fyrsta sigrinum í úrslitakeppnunum tveimur því karlalið Keflavík tapaði öllum þremur leikjum sínum í átta liða úrslitunum á móti KR. Keflavíkurliðin eru því 0-4 eins og er í úrslitakeppnum Domino´s deildanna 2019.

Næsti leikurinn í einvígi Keflavíkur og Stjörnunnar í undanúrslitum kvenna verður í Garðabæ á sunnudaginn kemur. Keflavíkurkonur þurfa þar ekkert nema sigur ef þær ætla sér eitthvað í úrslitakeppninni í ár.

Síðustu úrslitakeppnir þar sem Keflavíkurkonur hafa spilað fyrsta leik á heimavelli:

2019 - 8 stiga tap fyrir Stjörnunni (70-78) - ???

2018 - 11 stiga tap fyrir Val (77-88) - Komst ekki í úrslitaeinvígið

2017 - 2 stiga tap fyrir Skallagrími (68-70) - Íslandsmeistari

2015 - 31 stigs sigur á Haukum (82-51) - Silfurverðlaun

2013 - 10 stiga tap fyrir Val (53-64) - Íslandsmeistari

2012 - 9 stiga tap fyrir Haukum (54-63) - Komst ekki í úrslitaeinvígið




Fleiri fréttir

Sjá meira


×