Körfubolti

Körfuboltakvöld: Getur KR stöðvað Helenu?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Helena og Valskonur eru sigurstranglegar.
Helena og Valskonur eru sigurstranglegar. vísir/bára
Seinni undanúrslitarimman í Dominos-deild kvenna hefst í kvöld er deildarmeistarar Vals taka á móti KR.

Kjartan Atli Kjartansson hitaði upp fyrir rimmuna með Pálínu Gunnlaugsdóttir, Jóni Halldóri Eðvaldssyni og Finni Frey Stefánssyni.

Valsliðið hefur verið algjörlega óstöðvandi síðan Helena Sverrisdóttir gekk í raðir Vals. Það er því verk að vinna hjá KR að stöðva Helenu og stöllur hennar í liði Vals.

Leikur liðanna í kvöld hefst klukkan 17.30 og verður í beinni á Stöð 2 Sport 3.

Hér að neðan má sjá umræðuna um rimmuna.



Klippa: Körfuboltakvöld: Umræða um rimmu Vals og KR



Fleiri fréttir

Sjá meira


×