Erlent

Yfirvöld Chicago ætla að höfða mál gegn Smollett

Samúel Karl Ólason skrifar
Jussie Smollett.
Jussie Smollett. AP/Paul Beaty

Chicagoborg ætlar að höfða mál gegn leikaranum Jussie Smollett vegna kostnaðar við rannsókn á frásögn hans af barsmíðum sem hann sagðist hafa orðið fyrir í borginni. Yfirvöld borgarinnar kröfðust þess að hann greiddi 130 þúsund dali vegna málsins og leikarinn neitaði.



Smollett sagði í janúar að ráðist hefði verið á hann og var talið að um hatursglæp hafi verið að ræða. Hann sagði klór hafa verið hellt yfir sig og að einn mannanna, sem hefði verið með rauða derhúfu, hefði barið sig, hreytt í sig illyrðum og sett snöru um háls hans.



Þegar rannsókn málsins var komin vel á veg greindu fjölmiðlar vestanhafs frá því að talið væri árásin hefði verið sett á svið og að Smollett hefði greitt tveimur mönnum fyrir að ráðast á hann.



Hann var svo sagður hafa sett árásina á svið og ákærður fyrir að ljúga að lögreglu. Ákæruliðirnir lagðir fram á hendur Smollett voru sextán talsins. Hann var sakaður um að hafa greitt bræðrunum Ola og Abel Osundairo fyrir að sviðsetja árásina. Markmiðið hafi verið að bæta feril hans.



Allar ákærur gegn leikaranum voru óvænt felldar niður í síðasta mánuði og dómari innsiglaði málið, svo engar frekari upplýsingar hafa litið dagsins ljós. Í yfirlýsingu frá skrifstofu saksóknara í Cooksýslu, þar sem mál Smollett var til meðferðar, sagði að eftir að ítarlega skoðun, með tilliti til samfélagsþjónustu Smollett og samkomulags um að hann myndi gefa eftir þá tíu þúsund dali sem hann greiddi í tryggingu til Chicago-borgar, var talið að sanngjörn lausn væri komin í málið.



Rahm Emanuel, borgarstjóri Chicago, og Eddie Johnson, lögreglustjóri, voru vægast sagt ósáttir við ákvörðun saksóknaranna. Þeir héldu blaðamannafund þar sem þeir gagnrýndu Smollett harðlega og sögðu hann hafa svert orðspor borgarinnar.



Sjá einnig: „Hefur þessi maður enga sómakennd?“



Tilkynnt var í gærkvöldi að borgaryfirvöld ætluðu sér að höfða mál gegn Smollett. Hann hafði verið krafinn um 130 þúsunda dala greiðslu vegna kostnaðar við yfirvinnu lögregluþjóna við rannsókn málsins og neitaði Smollett að greiða þá upphæð.



Mark Geragos, lögmaður Smollett, hefur sent bréf til borgaryfirvalda í Chicago þar sem hann varar forsvarsmenn borgarinnar við því að höfða mál gegn Smollett. Hann segir að leikarinn muni ekki láta kúga sig til að greiða upphæðina, samkvæmt AP fréttaveitunni.



Verði það gert segir Geragos að hann muni krefjast vitnisburðar borgarstjórans, lögreglustjórans og bræðranna sem sögðu lögreglunni að Smollett hefði greitt þeim fyrir að sviðsetja árásina.

 


Tengdar fréttir

Empire-leikarinn með stöðu grunaðs manns

Lögregla í Chicago hefur staðfest að leikarinn Jussie Smollett sé nú formlega með stöðu grunaðs manns í sakamálarannsókn, en hann er grunaður um að hafa logið að lögreglu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×