Körfubolti

Stefnir í sömu örlög hjá vinunum Dwyane Wade og LeBron James

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dwyane Wade skorar í leiknum í nótt.
Dwyane Wade skorar í leiknum í nótt. AP/Frank Gunn
Brooklyn Nets og OrlandoMagic tryggðu sér bæði sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar með góðum útisigrum í nótt og nýttu sér þar með sárgrætilegt tap MiamiHeat í framlengingu í Toronto. MilwaukeeBucks liðið vann sinn sextugasta sigur og GoldenStateWarriors tryggði sér efsta sætið í Vesturdeildinni.

Síðasta tímabilDwyaneWade í NBA-deildinni endar ekki í úrslitakeppninni en það var ljóst eftir 109-117 tap á móti TorontoRaptors í framlengdum leik.





PascalSiakam var með 23 stig og 10 fráköst fyrir Toronto og Kawhi Leonard bætti við 22 stigum. Norman Powell var með 23 stig og DannyGreen skoraði 7 af sínu 21 stigi í framlengingunni.

DwyaneWade var stigahæstur hjá Miami liðinu með 21 stig og James Johnson var með 18 stig. Miami liðið var í ágætri stöðu upp á úrslitakeppni að gera en þetta var fjórði tapleikur liðsins í röð. Liðið getur enn náð áttunda og síðasta sætinu af Detroit Pistons en þá þarf mikið að breytast frá því í síðustu leikjum.

„Ég er niðurbrotinn eftir þetta tap,“ sagði DwyaneWade eftir leikinn en Miami liðið á enn smávon um sæti í úrslitakeppninni. Leikur þeirra fór fram á undan leikjum Brooklyn Nets og OrlandoMagic. Nets og Magic gerðu hins vegar það sem þurfti til að tryggja sig inn. DwyaneWade þarf því væntanlega að þola sömu örlög og vinur hans LeBron James og fara snemma í sumarfrí.

Það er því að verða staðreynd að úrslitakeppnin í ár verði án bæði DwyaneWade og LeBron James sem hafa sett svo mikinn svip á hana síðustu fimmtán árin.

D'AngeloRussell skoraði 20 stig og JoeHarris var með 19 stig þegar Brooklyn Nets vann 108-96 útisigur á Indiana Pacers og tryggði sér um leið sæti í úrslitakeppninni í fyrsta sinn í fjögur ár.

Þetta er jafnframt í fyrsta sinn síðan 2014-15 tímabilið sem Brooklyn Nets tapar ekki fleiri leikjum á tímabili en það vinnur.





TerrenceRoss skoraði 26 stig og NikolaVucevic var með 25 stig og 12 fráköst þegar OrlandoMagic tryggði sig inn í úrslitakeppnina með 116-108 útisigri á BostonCeltics. Þetta er í fyrsta sinn í sjö ár sem OrlandoMagic liðið fer í úrslitakeppnina. EvanFournier var með 24 stig fyirrOrlando en síðast var liðið í úrslitakeppninni tímabilið 2011-12.

OrlandoMagic myndi örugglega þiggja það að lenda á móti BostonCeltics í úrslitakeppninni því liðið vann alla leiki sína á móti Boston í deildarkeppninni og því hafði Magic-liðið ekki náð síðan 1996-97 tímabilið.

KyrieIrving var með 23 stig fyrir Boston liðið sem fékk hjálp við að tryggja sér fjórða sætið í Austrinu og heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Sigur Brooklyn Nets á Indiana liðinu tryggðiCeltics mönnum fjórða sætið þrátt fyrir þetta tap á heimavelli.







GiannisAntetokounmpo skoraði 30 stig og KhrisMiddleton var með 21 stig þegar MilwaukeeBucks vann 115-107 sigur á Atlanta Hawks. Þetta var sextugasti sigur Bucks á leiktíðinni en því hefur félagið ekki náð síðan 1981. MilwaukeeBucks var þegar búið að tryggja sér efsta sætið í Austurdeildinni.





StephenCurry skoraði 27 stig og GoldenStateWarriors fagnaði sigri í síðasta heimaleiknum sínum í deildarkeppninni í OracleArena með því að vinna Los AngelesClippers 131-104.

Með sigrinum, sem var sá fimmti í röð hjá GoldenState, þá tryggði liðið sér efsta sætið í Vesturdeildinni.  KevinDurant var með 16 stig og 7 stoðsendingar. DraymondGreen rétt missti af þrennunni með 10 stigum, 10 fráköstum og 9 stoðsendingum í þessum sjöunda sigri liðsins í síðustu átta leikjum.

GoldenStateWarriors er búið að spila í 47 ár í OracleArena í Oakland en á næsta tímabili þá flytur liðið í nýja höll, ChaseCenter í SanFrancisco.





James Harden skoraði 30 stig í þremur leikhlutum þegar HoustonRockets vann 149-113 sigur á PhoenixSuns en Houston liðið sló sitt eigið NBA-met í leiknum með því að skora 27 þrista. Harden var með fimm en flesta skoraði Eric Gordon eða átta. Gamla metið var 26 þristar í einum leik sem Houston hafði náð tvisvar á þessu tímabili.





KentaviousCaldwell-Pope skoraði 32 stig fyrir Los AngelesLakers sem endaði sjö leikja sigurgöngu UtahJazz með 113-109 sigri. Lakers liðið lék án margra sterkra leikmanna og þar á meðal LeBron James sem er komin í sumarfrí. Caldwell-Pope skoraði 18 stig í fjórða leikhlutanum. JaValeMcGee var með 22 stig og Alex Caruso skoraði 18 stig og gaf 11 stoðsendingar.









Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Los AngelesLakers - UtahJazz    113-109   

Portland TrailBlazers - DenverNuggets    115-108   

Sacramento Kings - NewOrleansPelicans    129-133   

GoldenStateWarriors - Los AngelesClippers    131-104   

BostonCeltics - OrlandoMagic    108-116   

NewYorkKnicks - WashingtonWizards    113-110   

HoustonRockets - PhoenixSuns    149-113   

MilwaukeeBucks - Atlanta Hawks    115-107   

MemphisGrizzlies - DallasMavericks    127-129 (112-112)   

Indiana Pacers - Brooklyn Nets    96-108   

DetroitPistons - Charlotte Hornets    91-104   

MinnesotaTimberwolves - OklahomaCityThunder    126-132   

ClevelandCavaliers - SanAntonioSpurs    90-112   

TorontoRaptors - MiamiHeat    117-109 (103-103)   

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×