Tuttugu ár frá einu sóðalegasta plakati Shaq | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. mars 2019 23:30 Shaq gat troðið með miklum krafti. vísir/getty
Shaquille O'Neal er óneitanlega einn besti stóri maður í sögu NBA-deildinnar í körfubolta en þessi mikli dreki vann fjóra meistaratitla á glæstum ferli eftir að vera valinn númer eitt í nýliðavalinu af Orlando Magic árið 1992. Hæstu hæðum náði hann ásamt Kobe Bryant hjá LA Lakers þar sem að þeir urðu meistarar saman þrjú ár í röð en Shaq var valinn mikilvægasti leikmaður lokaúrslitanna öll þrjú árin, 2000-2002. Shaq lét menn svo sannarlega finna fyrir því undir körfunni á sínum ferli í NBA-deildinni en tuttugu ár eru frá því að hann bauð upp á eitt sóðalegasta plakat sem sést hefur. Í leik á móti New York Knicks 28. mars 1999 tróð hann svo hressilega yfir Chris nokkurn Dudley að brotaþolinn brjálaðist og kastaði bolta á eftir Shaq er hann trítlaði brosandi til baka yfir á sinn vallarhelming. Dudley hafði nú kannski smá rétt á þessum viðbrögðum þar sem að Shaq ekki bara tróð yfir hann heldur hékk hann á hringnum og setti fæturnar nánast ofan á Dudley og ýtti honum út af vellinum. Báðir fengu tæknivillu.
NBA Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Fleiri fréttir Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ „Ætluðum okkur lengra en stoltur af liðinu“ „Ótrúlegar 50 mínútur af körfubolta“ Uppgjörið: KR-Stjarnan 115-118 | Stjarnan vann án Ægis og eftir tvær framlengingar Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 84-91 | Grindvíkingar í undanúrslit Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Hamar/Þór einum sigri frá Bónus eftir sigurkörfu á lokasekúndu KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Uppgjörið:Keflavík-KR 101-65: Keflavíkurkonur tryggðu sér oddaleik „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Læknirinn yfirgefur höllina „Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Tryggvi tókst á við Barcelona Mannleg mistök innifalin og karfan góð og gild Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Sjáðu lygilega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur Valur - Keflavík 79-78 | Sturluð sigurkarfa Kára Tindastóll - ÍR 125-87 | Fyrstir inn í undanúrslit Elvar og Martin í miklu stuði Sjá meira