„Kraftaverk“ að systur hafi fundist á lífi eftir 44 klukkustundir í óbyggðum Kristín Ólafsdóttir skrifar 4. mars 2019 07:37 Leia og Caroline Carrico. AP/Lögreglan í Humboldt-sýslu
Leia og Caroline Carrico, átta og fimm ára systur sem hurfu frá heimili sínu í norðurhluta Kaliforníuríkis í Bandaríkjunum á föstudag, fundust heilu og höldnu í gær. Haft er eftir viðbragðsaðilum að það sé kraftaverki líkast að stúlkurnar hafi fundist á lífi eftir þetta langan tíma í svo erfiðum skilyrðum. Slökkviliðsmenn sem tóku þátt í umfangsmikilli leit að stúlkunum gengu fram á Leiu og Caroline í skóglendi rúma tvo kílómetra frá heimili þeirra. Aðstæður til leitar voru nokkuð erfiðar en mikið hafði rignt á svæðinu undanfarna daga. Systurnar voru kaldar og blautar en ómeiddar og upplitsdjarfar þegar þær fundust, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á svæðinu. Haft er eftir William Honsal, lögreglustjóra í Humboldt-sýslu þar sem stúlkurnar búa, að þær hafi notfært sér þjálfun sem þær hlutu á skátanámskeiði í heimabænum og því farnast jafnvel og raun bar vitni. Þá sé magnað að systurnar hafi lifað af við svo erfið skilyrði. „Þetta er algjört kraftaverk. […] Hvernig þær voru þarna úti í 44 klukkustundir, það er frekar ótrúlegt.“ Von kviknaði í brjósti björgunarfólks á laugardag eftir að það gekk fram á fótspor eftir stúlkurnar og umbúðir utan af orkustykkjum, sem þær höfðu tekið með sér að heiman. Mynd af því þegar viðbragðsaðilar ræða við Leiu, eldri stúlkuna, nokkrum mínútum eftir að hún fannst hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Umrædda færslu lögreglunnar í Humboldt-sýslu má sjá hér að neðan.
Bandaríkin Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira