Hátt í hundrað írskra sjálfboðaliða leita Jóns Þrastar Nadine Guðrún Yaghi skrifar 23. febrúar 2019 12:13 Hátt í hundrað írskra sjálfboðaliða, ásamt fjölskyldu og vinum Jóns Þrastar Jónssonar, leita hans nú í Dyflinni en hans hefur verið saknað í tvær vikur. Utanríkisráðuneytið hefur vakið máls við írsk yfirvöld á hugsanlegri aðkomu írskra björgunarsveita í málinu og þá starfa íslensk og írsk lögregluyfirvöld náið saman.
Hátt í hundrað írskra sjálfboðaliða, ásamt fjölskyldu og vinum Jóns Þrastar Jónssonar, leita hans nú í Dyflinni en hans hefur verið saknað í tvær vikur. Utanríkisráðuneytið hefur vakið máls við írsk yfirvöld á hugsanlegri aðkomu írskra björgunarsveita í málinu og þá starfa íslensk og írsk lögregluyfirvöld náið saman. Jón Þröstur fór til Dyflinnar á Írlandi ásamt kærustu sinni um þarsíðustu helgi til að skoða kastala og taka þátt í pókermóti. Hann gekk út af hóteli sínu í Dyflinni eftir eins og hálfs dags dvöl, án síma, veskis og vegabréfs, og hefur ekki sést síðan. Lögregla í Dyflinni fer með rannsókn málsins en fjölskylda Jóns Þrastar fór út til Írlands að leita hans þegar hann hafði verið týndur í tvo daga. Leitað hefur verið að Jóni Þresti á skipulögðum leitarsvæðum í borginni undanfarna daga. Í morgun hófst umfangsmikil leit að sögn Katrínar Bjarkar Birgisdóttir, mágkonu hans en hátt í hundrað sjálfboðaliðar eru á ferðinni. Hátt í hundrað manns taka þátt í skipulagðri leit Jóns Þrastar.„Við vorum að senda út skipulagða hópa með hópstjórum. Þetta er eitthvað sem við skipulögðum á svæðinu. Við erum búin að mappa út svæði sem eru í eins kílómetra radíus frá því þar sem hann sást seinast. Það sem við erum aðallega að gera núna er að reyna fá upplýsingar. Við erum ekki beint að leita eða hengja upp skilti en við erum að spurja alla. Gangandi vegfarendur og við erum að banka á öll hús og við erum með sér svæði þar sem hann hvarf því við erum að vonast til þess að fólk sem er með rútínu sem hafi verið þarna þegar hann hvarf, því í dag eru tvær vikur sem hann hvarf, og vonast til að það hafi séð hann,“ segir Katrín Björk. Sveinn Guðmarsson, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir að borgaraþjónstan hafi haft aðkomu að málinu frá 10. febrúar síðasliðnum og stutt fjölskyldunni eins og kostur er. Í vikunni hafi fjölskyldumeðlimir verið boðaðir á fund í ráðuneytinu ásamt lögreglu, þar sem farið var yfir málið sem sé þó algjörlega á forræði írskra yfirvalda.Utanríkisráðuneytið hefur vakið máls við írsk yfirvöld á hugsanlegri aðkomu írskra björgunarsveita.Írska lögreglan sé með málið til rannsóknar en virkt samband sé milli írsku og íslensku lögreglunnar í málinu og að á milli þeirra ríki mikið traust. Á Írlandi eru starfræktar björgunarsveitir, Civil defence Ireland, sem eru líkt og íslensku björgunarsveitirnar sjálfboðaliðasamtök. Sveinn staðfestir að íslensk stjórnvöld hafi vakið máls á hugsanlegri aðkomu þessarar stofnunar við írskt stjórnvöld en ekki liggur fyrir hvort af því verði. Katrín Björk segir að lögreglan á Íralandi sé í mjög góðu samstarfi við fjölskylduna. Enn séu þó engar vísbendingar um hvar Jón Þröstur gæti verið en meðal þess sem verið er að leita af eru prins sígaretturpakkar en vitað er að hann var með slíkan pakka meðferðis. Sá sígarettupakki fáist ekki á Írlandi. „Allir hópstjórar eru með mynd af þessu og það er verið að leita líka að tómum sígarettupakka og þessum stubbum til að vonadi rekja leiðina hans,“ segir Katrín Björk og bætir við að leitað verði í allan dag. Bræður Jóns Þrastar ræddu um hvarfið í vinsælum írskum spjallþætti í gærkvöldi með það fyrir augum að vekja athygli á málinu.
Írland Leitin að Jóni Þresti Lögreglumál Tengdar fréttir Skoða fjölda nýrra ábendinga í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Þá er búist við góðri þátttöku í stórri sjálfboðaliðaleit að Jóni Þresti í Dyflinni á morgun. 22. febrúar 2019 11:25 Fjölskylda Jóns Þrastar gagnrýnin á lítil afskipti yfirvalda í málinu: „Hann er kletturinn í fjölskyldunni“ Systir og mágkona Jóns Þrastar Jónssonar, sem hvarf í Dyflinni fyrir tíu dögum, eru gagnrýnar á lítil afskipti íslenskra yfirvalda í málinu. Fjölskyldan hafi þurft að sækja alla aðstoð sjálf. Þær segja málið algjöra ráðgátu, Jón sé mikill fjölskyldumaður sem hafi ekki verið í neinu rugli. 19. febrúar 2019 19:00 Leita sjálfboðaliða til að aðstoða við leit að Jóni Þresti Fjölskylda Jóns Þrastar Jónssonar, Íslendingsins sem hvarf í Dublin um síðustu helgi, leitar nú sjálfboðaliða til þess að aðstoða við leitina að Jóni. 16. febrúar 2019 14:30 Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira
Skoða fjölda nýrra ábendinga í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Þá er búist við góðri þátttöku í stórri sjálfboðaliðaleit að Jóni Þresti í Dyflinni á morgun. 22. febrúar 2019 11:25
Fjölskylda Jóns Þrastar gagnrýnin á lítil afskipti yfirvalda í málinu: „Hann er kletturinn í fjölskyldunni“ Systir og mágkona Jóns Þrastar Jónssonar, sem hvarf í Dyflinni fyrir tíu dögum, eru gagnrýnar á lítil afskipti íslenskra yfirvalda í málinu. Fjölskyldan hafi þurft að sækja alla aðstoð sjálf. Þær segja málið algjöra ráðgátu, Jón sé mikill fjölskyldumaður sem hafi ekki verið í neinu rugli. 19. febrúar 2019 19:00
Leita sjálfboðaliða til að aðstoða við leit að Jóni Þresti Fjölskylda Jóns Þrastar Jónssonar, Íslendingsins sem hvarf í Dublin um síðustu helgi, leitar nú sjálfboðaliða til þess að aðstoða við leitina að Jóni. 16. febrúar 2019 14:30