Jordan minnti á að hann er sá besti með frábæru svari Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. febrúar 2019 16:00 Michael Jordan er eigandi Charlotte í dag. vísir/getty
Stjörnuleikurinn í NBA-deildinni verður haldinn í Charlotte að þessu sinni á heimavelli Charlotte Hornets en eigandi félagsins og stjórnarformaður er besti körfuboltamaður allra tíma, Michael Jordan. Jordan sat fyrir svörum á hálftíma löngum blaðamannafundi í gær ásamt Fred Whitfield, framkvæmdastjóra Hornets, þar sem að þeir sögðu frá vinnunni á bak við tjöldin í kringum stjörnuhelgina og svöruðu spurningum blaðamanna. Undir lokin fékk Jordan spurningu um tvær ofurstjörnur sem eru á leið til Charlotte í stjörnuleikinn, Russell Westbrook og James Harden, sem hafa farið á kostum í vetur. Westbrook bætti met Wilt Chamberlain með því að ná níu þrennum í röð og James Harden skoraði yfir 30 stig í 30 leikjum í röð. Jordan var spurður hvort afrekið væri merkara og erfiðara að ná. „Ég er mjög stoltur af þeim báðum og því sem þeir hafa afrekað. Þeir eru að setja sitt mark á deildina og þetta hjálpar henni að stækka,“ sagði Jordan sem vann auðvitað sex meistaratitla á sínum tíma og var besti leikmaður lokaúrslitanna í öll skiptin. Því á greinilega enginn að gleyma. „Hvort er erfiðara [afrek Westbrook eða Harden]?“ spurði Jordan á móti. „Nú að vinna sex meistaratitla!“
NBA Mest lesið Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Fleiri fréttir Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Sjá meira