Erlent

Á þriðja tug látnir eftir að sprengja sprakk í messu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Mikil eyðilegging blasti við viðbragðsaðilum þegar þeir komu að kirkjunni.
Mikil eyðilegging blasti við viðbragðsaðilum þegar þeir komu að kirkjunni. EPA/WESTMINCOM
Að minnsta kosti 27 eru látnir og tugir særðir eftir að sprengjuárás var gerð á kaþólska kirkju í suðurhluta Filippseyja á sunnudagsmorgun. Haft er eftir yfirvöldum á svæðinu að tvær sprengjur hafi verið sprengdar í árásinni.

Fyrri sprengingin varð í miðri sunnudagsmessu í kirkjunni, sem staðsett er á Jolo-eyju, um klukkan 8:45 að staðartíma, eða korter í eitt  í nótt að íslenskum tíma. Þegar viðbragðsaðilar frá hernum mættu á staðinn sprakk seinni sprengjan á bílastæði fyrir utan kirkjunna.

Samkvæmt frétt BBC hafa engin hryðjuverkasamtök enn lýst yfir ábyrgð á árásinni en íslamskir skæruliðar halda úti starfsemi á eyjunni. Fleiri sprengjuárásir hafa verið gerðar á kirkjuna í gegnum tíðina. Þá er meirihluti hinna látnu almennir borgarar.

Varnarmálaráðherra Filippseyja, Delfin Lorenzana, sagði árásina níðingsverk og hvatti heimamenn til að sýna yfirvöldum samstarfsvilja í baráttunni gegn hryðjuverkum.

Tugir voru fluttir særðir á sjúkrahús.EPA/WESTMINCOM

Vonast til að nýtt sjálfsstjórnarhérað bindi enda á blóðsúthellingar

Löggjöf um að gera nokkur héruð á svæðinu að einu sjálfstjórnarhéraði var samþykkt með miklum meirihluta í íbúakosningu í síðustu viku. Íbúar Sulu-héraðs, sem Jolo-eyja tilheyrir, höfnuðu hins vegar sameiningunni. Eyjan verður samt sem áður hluti af nýju sjálfsstjórnarhéraði, Bangsamoro, þar sem meirihluti íbúa eru múslimar.

Vonast er til þess að stofnun Bangsamoro verði liður í því að koma á friði milli filippseyska hersins og íslamskra aðskilnaðarsinna á Filippseyjum. Talið er að aðilar sem vilji ekki frið á svæðinu hafi staðið að árásinni en átök hafa geisað á milli áðurnefndra hópa í fjölda ára, með miklum blóðsúthellingum og mannfalli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×