Bjóðast til þess að byggja flugstöð til þess að flýta fyrir uppbyggingu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. janúar 2019 15:30 Akureyrarflugvöllur er einn af varaflugvöllum fyrir Keflavíkurflugvöllur. Fréttablaðið/völundur
Fjárfestingarfélagið KEA, í samvinnu við Höldur og SBA-Norðurleið, vinnur nú að hugmynd sem felur í sér að félagið reisi og borgi fyrir byggingu nýrrar flugstöðvar við Akureyrarflugvöll sem ætluð yrði millilandaflugi. Gengið er út frá því að kostnaður við verkið yrði mun minni en eldri hugmyndir gera ráð fyrir. Hin nýja bygging yrði svo leigð rekstraraðila flugvallarins en með þessu er vonast til þess að hægt sé að flýta fyrir uppbyggingu á flugvellinum, sem heimamenn telja mikla þörf á.Greint var frá hugmyndinni í Morgunblaðinu um helgina en í samtali við Vísi segir Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, að hugmyndin sé á vinnslustigi. Gengið sé út frá því að reist verði um 1.000-1.500 fermetra stálgrindarhús við hlið flugstöðvarinnar sem fyrir er. Kostnaður við verkið er áætlaður um 200-250 þúsund á fermetra miðað við að hinni nýrri flugstöð yrði skilað til rekstraraðila, tilbúin til innréttingar og án tækjabúnaðar.Heildarkostnaður yrði því á bilinu 200-400 milljónir. Halldór segir þörfina brýna, ekki síst með auknu millilandaflugi um flugvöllinn.„Aðstaðan í flugstöðinni er óviðunandi, hún er einfaldlega of lítil. Þetta er aðstaða sem er ekki boðleg ef að menn ætla á annað borð að stuðla að millilandaflugi eins og ríkissjóður er meðal annars að gera með Flugþróunarsjóði. Okkur finnst í sjálfu sér þetta fylgja, bara eins og nótt fylgir degi, að þetta þarf að laga og bæta,“ segir Halldór.Verkfræði og hönnunarstofan AVH hefur teiknað þessa skissu af því hvernig millilandaflugstöðin, til vinstri, gæti litið út.Mynd/AVHMillilandaflug aukist að undanförnu Breska ferðaskrifstofan Super Break hóf flug beint flug frá Bretlandi til Akureyrar á síðasta ári og tók upp þráðinn aftur í vetur. Þá ætlar hollenska ferðaskrifstofan Voigt Travel að bjóða flug til Akureyrar frá og með næsta sumri. Töluvert hefur verið fjallað um aðstöðuna á Akureyrarflugvelli frá því að Super Break hóf flug þangað á síðasta ári. Farþegar þurftu meðal annars að bíða í strætisvögnum á flughlaðinu eftir fyrsta flugið á vegum Super Break til Akureyrar í janúar á síðasta ári. Ekki var pláss fyrir alla að bíða í biðröð í flugstöðinni eftir að komast í öryggisleit.Halldór segir að hugmyndin um að KEA og fleiri aðilar á svæðinu kæmu að byggingu nýrrar flugstöðvar hafi kviknað fljótlega eftir þetta.„Þetta kemur þegar menn sjá að flugið er komið og menn sjá hvernig aðstaðan er. Hvernig fólkið er þarna að þvælast um flugstöðina, hreinlega bara við illan leik. Fólk er undir berum himni eða í strætisvögnum að bíða eftir að komast inn í flugstöðina. Þetta er auðvitað bara óboðleg aðstaða sem þarf að laga,“ segir Halldór.Stækka þarf flughlaðið á Akureyrarflugvelli til að liðka fyrir millilandaflugi.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.Ítrekað kallað eftir uppbyggingu úr mismunandi áttum Heimamenn hafa ítrekað kallað eftir því að framkvæmdir til þess að efla Akureyrarflugvöll komist á dagskrá sem fyrst, ekki síst vegna þess að flugvöllurinn gegnir hlutverki varaflugvallar fyrir Keflavíkurflugvöll. Þá hafa forsvarsmenn Icelandair og WOW Air, sem og samtök flugmanna, bent á að framkvæmdir við stækkun flughlaða Akureyrar- og Egilsstaðaflugvallar þoli ekki tíu til fimmtán ára bið eins og lagt er upp með í samgönguáætlun fyrir árin 2019-2033. „Það fylgir því að ef menn ætla að stækka flughlöðin til að taka á móti einhverjum fjölda véla þegar veður eru válynd syðra þá þarf að taka á móti fólki úr þeim vélum í gegnum einhverjar byggingar. Núverandi bygging gerir það bara ekki þannig að þetta fellur allt saman,“ segir Halldór.Í skýrslu sem Eyþing, Samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, kynnti í haust, kemur fram að núverandi flugstöð geti ekki með góðu móti annað farþegum í millilandaflugi og að þörf fyrir uppbyggingu á flugvellinum sé brýn. Þær tillögur að uppbyggingu á vellinum sem skoðaðar voru í skýrslunni gera ráð fyrir að bygging á nýrri flugstöð og breytingum á núverandi byggingu myndu kosta um 1,5 milljarð. Lágmarksbyggingartími yrði um tvö ár. Sem fyrr segir er hins vegar gert ráð fyrir mun minni kostnaði við hugmynd KEA. Hugmyndin gerir ráð fyrir því að það náist með því að byggja einfalt stálgrindarhúsi sem taki skemmri tíma að byggja. Hafa skal þó í huga að verðhugmynd KEA er miðuð við stofnkostnað við byggingu flugstöðvarinnar sem yrði, líkt og áður segir, skilað til rekstraraðila tilbúin til innréttingar, án tækjabúnaðar. „Við bjóðumst til þess að gera þetta til þess að flýta málinu eins og hægt er þannig að menn séu ekki að fara í hefðbundna opinbera framkvæmd sem tekur tvö ár eða meira. Það er bara tími sem við höfum ekki,“ segir Halldór.Formlegir fundir fyrirhugaðir Búið er að teikna upp grófa skissu af því hvernig 1.500 fermetra flugstöð við Akureyrarflugvöll samkvæmt þessari hugmynd gæti litið út. Halldór segir þó að málið sé skammt á veg komið, búið að sé að ræða það óformlega við ISAVIA og samgönguráðuneytið og fyrirhugaðir séu formlegir fundir á næstunni vegna málsins. Komist skriður á máli feli það meðal annars í sér þarfagreiningu á því hvað ný flugstöð þurfi að fela í sér. Gangi allt upp er reiknað með að hægt væri að reisa hina nýju flugstöð á 7-12 mánuðum. „Þessi skilaboð sem við höfum fengið um þessa hugmynd eru bara jákvæð þannig að ég er bara ágætlega bjartsýnn fyrir framhaldið.“
Akureyri Fréttir af flugi Samgöngur Mest lesið Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Brotist inn hjá Alberti Innlent „Ég var skelfingu lostinn“ Innlent Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Innlent Átta ár fyrir gróf brot gegn gestkomandi barni og eiginkonu Innlent Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Innlent Fleiri fréttir Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Kvöddu Davíð hinsta sinni Enn óvissa um framtíð blóðmerahalds: „Þetta er stórt og viðkvæmt mál“ Losun virkjana fjórðungi minni með nýrri lofthreinsistöð Vegurinn á Bolafjall ekki lengur á ábyrgð utanríkisráðuneytisins Átta ár fyrir gróf brot gegn gestkomandi barni og eiginkonu Hrönn og Þórir hafna helstu ávirðingum á RIFF „Ég var skelfingu lostinn“ Aðstoða blauta og kalda gönguskíðamenn á Hofsjökli Óveðrinu slotað og ASÍ með áhyggjur af bensínverðinu Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Listi Framsóknar í Kópavogi kynntur og Orri áfram oddviti Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Sjá meira