Bílar

Ferrari Roma kynntur til sögunnar

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ferrari Roma hefur fallega blöndu af mjúkum og skörpum línum.
Ferrari Roma hefur fallega blöndu af mjúkum og skörpum línum. Vísir/Ferrari
Ferrari kynnti í gær til leiks nýjasta bílinn í sinni framleiðslu, Ferrari Roma. Roma er nefndur eftir höfuðborg Ítalíu Róm. Ferrari Roma er tveggja sæta sportbíll.

Bíllinn er hannaður með annað augað á útlitslegum línum Ferrari-a úr fortíðinni. Ef vel er að gáð má sjá vísbendingar um bíla eins og Ferrari 250 GT Berlinetta Lusso og 250 GT 2+2.

Ferrari 250GT Berlinetta LussoVísir/Getty
Roma notar 3,9 lítra V8 vél sem skilar 612 hestöflum og gerir það í gegnum átta gíra tveggja kúplinga sjálfskiptingu. Bíllinn nær 100 km/klst á 3,4 sekúndum og er 9,3 sekúndur í 200 km/klst. Hámarkshraðinn er yfir 320 km/klst.

Innra rýmið er fallegt en skiptingin á milli farþega og ökumanns er nokkuð afgerandi.Vísir/Ferrari
Innra rýmið er athyglisvert, en hálfgert skilrúm er á milli sætanna tveggja. Ökumaðurinn hefur stafrænt mælaborð að horfa á og afþreyingarskjá þar við hliðina á. Farþeginn fær svo sérstakan skjá að horfa á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×