Reikna með tugþúsundum á útsýnispall í háloftunum í Bolungarvík Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. febrúar 2019 15:45 Útsýnið verður einstakt að sögn bæjarstjórans. Landmótun, Argos og Sei
Bolvíkingar eiga von á því að tugir þúsunda ferðamanna muni nýta sér útsýnispall á Bolafjalli í Bolungarvík. Verðlaunatillaga í samkeppni var kynnt í sal Ráðhúss Bolungavíkur í dag. Bæjarstjóri er spenntur, segir markhópinn stóran og útsýnið af pallinum engu líkt. Bolafjall er 636 metrar á hæð og eitt fjallanna í kringum bæinn sem bæjarbúar eru stoltir af. Keppnin var auglýst í september og óskuðu sextán hönnunarteymi eftir því að taka þátt í samkeppninni. Af þeim uppfylltu 15 skilyrði hönnunarteyma. Þrjú teymi voru dregin af handahófi í október og skiluðu þau inn tillögum að hönnun á útsýnispalli í desember. Ratstjárstöðin á Bolafjalli. Útsýnispallinn má sjá skaga fram af brúninni fyrir miðri mynd.Landmótun, Argos og Sei Dómnefnd lauk störfum í janúar með því að velja vinningstillögu. Var það teymi Landmótunar, Argos og Sei arkitekta sem bar sigur úr býtum. Í áliti dómnefndar kemur fram að vinningstillagan sé látlaus en afar sterk hugmynd sem virðir umhverfið og ber það ekki ofurliði. Klippa: Útsýnispallur á Bolafjalli „Tillagan uppfyllir markmið samkeppninnar um að gera útsýnisstaðinn á Bolafjalli að eftirsóknarverðum ferðamannastað á Vestfjörðum og þó víðar væri leitað. Hönnun pallsins býr yfir eiginleikum bæði varðandi fagurfræði og staðsetningu til þess að pallurinn verði einstakur í sínum flokki. Hann fellur vel að umhverfinu og endurspeglar í hlutföllum og útfærslu mikilfengleika þess,“ segir á heimasíðu Bolungarvíkur. Pallurinn, eins og verðlaunatillagan gerir ráð fyrir, séð úr lofti.Landmótun, Argos og Sei Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri í Bolungarvík, fagnar tillögunni og er spenntur fyrir framhaldinu. Næstu skref eru að útfæra tillöguna nánar, kalla eftir öllum leyfum og fá skipulagið á hreint. Svo er það náttúrulega fjármögnun samhliða því.“ Hann segir samkeppnina hafa verið fjármagnaða með styrk frá framkvæmdasjóði ferðamannastaða sem heyrir undir Ferðamálastofu. „Við erum með stóra styrkumsókn þar inni. Við ætlum að leita þangað,“ segir Jón Páll. Jón Páll Hreinsson. Ljóst er að kostnaður við framkvæmdina er töluverður. „Við erum ekki búnir að stela neinum hugmyndum frá Jóni Gunnarssyni að leggja veggjöld,“ segir Jón Páll léttur. „Það er ekki komin kostnaðaráætlun en það liggur ljóst fyrir að þetta er verkefni upp á tugi eða yfir hundrað milljónir.“ Engar formlegar tölur eru til um þann fjölda ferðamanna sem leggur leið sína á Bolafjall árlega. Þangað er hægt að aka upp á bílum utan þess tíma þegar snjór situr í fjallinu. „Til Ísafjarðar koma yfir 100 þúsund skemmtiferðaskipafarþegar á hverju ári. Markhópurinn er gríðarlega stór. Við erum fullviss um að þetta séu tugir þúsunda.“ Af fjallinu verður útsýni einstakt að sögn Jóns Páls. Klippa: Útsýnispallur á Bolafjalli í Bolungarvík „Maður horfir beint inn í Jökulfirðina. Við vorum að koma niður og sáum inn í Jökulfirðina og Hótel Grænuhlíð sem við kölluðum hlíðina þar sem togararnir liggja þegar norðanstormurinn geisar.“ Það væri vafalítið góð stund að standa á pallinum í bongóblíðu og horfa yfir á Jökulfirðina.Landmótun, Argos og Sei
Bolungarvík Ferðamennska á Íslandi Útsýnispallur á Bolafjalli Tengdar fréttir Gæslan flaug með páskaegg á Bolafjall Fyrr í vikunni fór þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA, í hefðbundið eftirlitsflug vestur af landinu og tók svo eina æfingarlendingu á fjallseggjunum við ratsjárstöðina á Bolafjalli við Ísafjarðardjúp. 14. apríl 2017 19:42 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira
Gæslan flaug með páskaegg á Bolafjall Fyrr í vikunni fór þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNA, í hefðbundið eftirlitsflug vestur af landinu og tók svo eina æfingarlendingu á fjallseggjunum við ratsjárstöðina á Bolafjalli við Ísafjarðardjúp. 14. apríl 2017 19:42