Segist tilneyddur til að sættast: „Gáfumst upp á þessum slag“ Hersir Aron Ólafsson skrifar 7. júlí 2018 20:30
Á þriðja hundrað skrautfuglar úr gæludýraversluninni Dýraríkinu voru aflífaðir í gær eftir harðar deilur við Matvælastofnun undanfarna mánuði. Lögfræðingur stofnunarinnar segir sátt hafa náðst um málið, en eigandi Dýraríkisins segist einfaldlega hafa gefist upp. Fuglarnir höfðu verið í sóttkví mánuðum saman, en í tilkynningu frá MAST segir að aðilar málsins hafi náð sátt um málalokin. „Matvælastofnun er afskaplega ánægð með að þetta skuli vera leyst og í góðri sátt við Dýraríkið. Það er kannski það sem skiptir mestu máli núna,“ segir Einar Örn Thorlacius, lögfræðingur MAST.Slagur í marga mánuði „Þetta er búinn að vera slagur í marga mánuði. Niðurstaðan er bara þessi að við í rauninni bara gefumst upp á þessum slag,“ segir Þórarinn Þór, eigandi Dýraríkisins. Slagurinn nær aftur til mars mánaðar þegar MAST krafðist þess að 358 skrautfuglar yrðu aflífaðir eða fluttir úr landi vegna sníkjudýrs sem fannst í einum þeirra. Réttaráhrifum ákvörðunarinnar var frestað eftir að Dýraríkið vísaði málinu til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og fuglarnir áfram í sóttkví. Í eftirlitsferð MAST 22. júní kom í ljós að um þriðjung fuglanna vantaði, án þess að gerð hefði verið grein fyrir því, en þeir reyndust vera dauðir.Góð sóttkví fyrir einn mánuð „Þú getur tekið dæmi t.d. um ef 100 hundar væru í sóttkví og 30 væru skyndilega dauðir, þá náttúrulega myndi mönnum bregða í brún. Fuglar eru líka dýr og þarna var eitthvað mikið í gangi sem við vitum ekki hvað er,“ segir Einar Örn. „Þessi sóttkví er ljómandi fín fyrir einn mánuð, það er ágætis loft þarna inni og ágætis rými fyrir einn mánuð. En fyrir svona marga mánuði þá var þetta ekki hægt,“ segir Þórarinn.Lögregla taldi sér ekki heimilt að aðstoða MAST Þann 27. Júní mættu fulltrúar MAST í Dýraríkið og hugðust aflífa fuglana. Þá hitnaði í kolunum milli lögfræðinga MAST og Dýraríkisins, en lögregla gat ekki veitt aðstoð við að brjótast inn í sóttkvína og sækja fuglana, þar sem hún taldi sig ekki hafa heimild til þess að lögumFrétt Stöðvar 2: Átök um förgun 250 skrautfugla „Okkur brá eiginlega í brún við þetta og við munum taka málið upp við Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og vonum að það beiti sér fyrir breytingu á lögum á þessu sviði,“ segir Einar Örn. Þórarinn segir faglega álitsgerð sýna að hægt hefði verið að meðhöndla mítilinn strax í upphafi og með meiri samstarfsvilja MAST hefðu fuglarnir ekki þurft að deyja. „Megnið af þessum dauða gerist á seinni stigum sóttkvíarinnar, síðustu vikurnar. Þannig að þetta hefði ekki þurft að fara svona,“ segir Þórarinn.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Sjá meira