Messan um skiptingu Shaqiri: Eðlilegt að hvíla hann og fara í reitarbolta í seinni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 24. september 2018 11:00 Shaqiri var allt í öllu í fyrri hálfleik á Anfield á laugardaginn vísir/getty
Xherdan Shaqiri var maðurinn á bak við tvö af þremur mörkum Liverpool í sigrinum á Southampton um helgina. Þrátt fyrir það tók Jurgen Klopp hann út af í hálfleik. Shaqiri átti skot snemma leiks sem fór af varnarmanni Southampton og í netið, skráð sem sjálfsmark en búið til af Svisslendingnum. Hann tók svo aukaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks sem fór í þverslánna og Mohamed Salah potaði frákastinu í netið. Í millitíðinni hafði Joel Matip skorað mark úr hornspyrnu svo Liverpool var 3-0 yfir í hálfleik. Jurgen Klopp sagði eftir leikinn að þetta hefði verið taktísk breyting. Sérfræðingar Messunnar á Stöð 2 Sport ræddu þessa breytingu í þætti gærkvöldsins og var Ríkharð Óskar Guðnason, þáttstjórnandi, stórfurða yfir skiptingunni. Sérfræðingar hans voru hins vegar ekki eins hissa á aðgerðum Klopp. „Þeir voru 3-0 yfir í hálfleik og það er bara eðlilegt ef það hentar skipulaginu að hann vill bara verja þetta og sigla þessu heim, eins og hann gerði,“ sagði Gunnleifur Gunnleifsson. Jón Kaldal tók undir það. „Ég skildi þetta alveg. Hann var bara að hlífa honum. Hann er að detta betur og betur inn í leik liðsins, hvíldu hann. Ert í 3-0 og ferð bara í reitarbolta og drepur leikinn í seinni.“ Liverpool er eina liðið sem ekki hefur tapað stigum í ensku úrvalsdeildinni og trónir á toppnum. Liðið vann PSG í Meistaradeildinni í síðustu viku og mætir Chelsea í næstu tveimur leikjum, í deildarbikarnum á miðvikudag og í deildinni á laugardag.
Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fleiri fréttir Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sjá meira