Benedikt: Veit við eigum eftir að komast á stórmót aftur Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 3. júlí 2018 19:15
Íslenska landsliðið í körfubolta tapaði í gær gegn Finnum í undankeppni HM og er úr leik í keppninni. Tapið þýðir að íslenska liðið þarf að fara í forkeppni fyrir undankeppni EM. „Við dettum úr þessum styrkleikariðli sem við erum komnir í og það þýðir að við þurfum að fara í alls kyns forkeppnir. Það er alveg hægt að komast á EM aftur en leiðin er töluvert lengri og það eru fleiri ljón á veginum,“ sagði Benedikt Guðmundsson við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Ísland leikur með Portúgal og Belgíu í riðli í 2. umferð forkeppni EM sem hefst í september. Efsta lið riðilsins fer í 32 liða undankeppni EM, hin tvö fara í 3. umferð forkeppninnar þar sem annað tækifæri gefst til þess að komast í undankeppnina. „Auðvitað veit maður að við erum ekki að fara að verða áskrifendur að lokakeppni EM, það segir sig alveg sjálft, en auðvitað vilum við komast þangað aftur. Við erum að búa til nýtt lið núna, það eru ákveðin kynslóðaskipti í gangi og miklar breytingar, þessi kynslóð sem er búin að koma okkur á tvö stórmót er að segja skilið við þetta.“ „Það eru breytingar á þjálfarateyminu, báðir aðstoðarþjálfararnir hættir, þannig að það eru alls kyns breytingar í gangi.“ „Fyrir svona tveimur, þremur árum hafði ég áhyggjur af því hvað myndi gerast þegar þessi kynslóð segir skilið við þetta. En þessir strákar sem eru að koma upp núna eru hver öðrum hæfileikaríkari þannig að ég veit að við eigum eftir að fara á stórmót aftur,“ sagði Benedikt Guðmundsson.
Körfubolti Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Fótbolti 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Körfubolti Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Fótbolti Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Fótbolti Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Fótbolti Fleiri fréttir 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Sjá meira