Matur

Bakað blómkál með pestói og valhnetum

Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar
Iðunn valdi að fara á samning á sjávarréttastað til að læra að borða fisk sem nú er í miklu uppáhaldi hjá henni. Hún steikir gjarnan fisk í smjöri og léttsaltar. Úr því verður dýrindismáltíð.
Iðunn valdi að fara á samning á sjávarréttastað til að læra að borða fisk sem nú er í miklu uppáhaldi hjá henni. Hún steikir gjarnan fisk í smjöri og léttsaltar. Úr því verður dýrindismáltíð. Vísir/Stefán

Helgin verður annasöm hjá Iðunni Sigurðardóttur. Hún er ein fimm kokka sem komnir eru áfram í úrslit í keppninni um kokk ársins og er önnur konan til að komast í úrslit frá því að keppnin hóf göngu sína árið 1994.

Matreiðsla hefur lengi verið Iðunni hugleikin. Um leið og hún lauk námi í faginu bauðst henni vinna sem yfirkokkur á splunkunýjum veitingastað í miðbæ Reykjavíkur, þá rúmlega tvítug. Iðunn gat ekki hafnað þessu kostaboði og hóf störf hjá Matarkjallaranum þar sem hún ræður ríkjum í eldhúsinu.

„Ég ákvað að slá til, enda mikil áskorun að vera yfirkokkur en um leið krefjandi og skemmtilegt starf. Það fylgir því vissulega ábyrgð og ég hef meira en matreiðsluna á minni könnu. Ég sé um pantanir og pappírsvinnu og skipulegg matseðil fyrir staðinn nokkra mánuði fram í tímann í samvinnu við Ara Frey Valdimarsson, sem vinnur á móti mér,“ segir Iðunn.

Bakað blómkál með pestói og valhnetum.

Lærði að borða fisk

Strax á unga aldri var Iðunn ákveðin í að læra matreiðslu en henni hefur alltaf þótt skemmtilegt að elda. Núna hefur eldri bróðir hennar fetað í fótspor hennar og vinnur í eldhúsi en þau systkinin eru frá Oddgeirshólum á Suðurlandi.

„Við kunnum vel að meta íslenskan sveitamat og fjölskyldan tekur slátur á haustin,“ segir Iðunn sem flutti í bæinn til að læra matreiðslu.

„Ég fékk samning hjá Fiskfélaginu og var þar allan námstímann. Ég sóttist sérstaklega eftir því að fá samning á veitingastað þar sem sjávarréttir eru í fyrirrúmi. Mér þótti fiskur einstaklega bragðvondur og langaði að læra að borða hann og það tók ekki nema viku hjá Fiskfélaginu,“ rifjar hún upp.

Spurð hvaða aðferð sé skotheld þegar kemur að því að matreiða fisk segir Iðunn að sér finnist alltaf heppnast vel að steikja hann í smjöri og salta að smekk. Hún er almennt hrifin af einfaldri matreiðslu þar sem gott hráefni fær að njóta sín.

„Smjör og laukur eru hráefni sem allir ættu að eiga því það er hægt að fara langt í matreiðslu með þetta tvennt við höndina,“ segir hún.

Iðunn keppir um titilinn Kokkur ársins um helgina en hún er önnur konan til að komast þetta langt í keppninni sem hóf göngu sína 1994. Vísir/Stefán

Uppskriftir og innblástur

Iðunn fær víða hugmyndir að nýjum réttum og fylgist vel með straumum og stefnum í faginu.

„Ég fæ innblástur héðan og þaðan, svo sem á netinu eða þegar ég sé fallega uppstillingu á mat. Ég les töluvert af uppskriftum og matreiðslubókum en fer þó ekki eftir annarra manna uppskriftum heldur fæ hugmyndir út frá þeim og þróa áfram.

Matreiðslubókin Relæ – A Book of Ideas eftir Christian F. Puglisi er í miklu uppáhaldi hjá mér. Þá fer ég oft út að borða og stundum fer ég til útlanda eingöngu til að fara út að borða. Það eru skemmtilegustu utanlandsferðirnar,“ segir Iðunn.

En hvað skyldi vera það furðulegasta sem Iðunn hefur borðað? 

„Ég fékk einu sinni súkkulaðihúðað kjúklingaskinn sem var borið fram sem konfekt á veitingastað í Kaupmannahöfn. Mér fannst það dálítið skrítið.“

Bakað blómkál með pestói og valhnetum

Blómkál

1 haus blómkál

1 rósmaríngrein

Fínt salt

Brúnað smjör (smjör soðið þangað til það byrjar að brúnast)



Aðferð:

Skerið blómkálshausinn í tvo til fjóra hluta, fer eftir stærð, pakkið inn í álpappír með salti, brúnuðu smjöri og rósmaríngrein. Bakið við 180°C í um 20 mín. eða þangað til það er hægt að stinga auðveldlega í blómkálið.



Pestó

100 g ristaðar furuhnetur

100 g parmesan

5 greinar basil

50 ml olía

100 g klettasalat



Aðferð:

Vinnið furuhneturnar og parmesanostinn saman í matvinnsluvél þangað til það er orðið frekar fínt saxað. Setjið klettasalat, basil og olíu saman í blandara eða matvinnsluvél þangað til það er orðið að mauki. Vinnið síðan hnetumixið og basilmaukið saman í matvinnsluvélinni.



Hunangsgljáðar valhnetur

50 g valhnetur

5 msk. hunang



Aðferð:

Hitið upp í hunanginu í potti, bætið valhnetunum út í og hrærið á meðan. Setjið síðan á smjörpappír inn í ofn á 160°C í 8 mínútur. Færið blómkálið á disk, setjið pestó yfir það og skreytið með hunangsgljáðum valhnetum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×