Jafnrétti er ekki einkamál kvenna 27. janúar 2018 14:00 Sigyn Jónsdóttir, formaður UAK, segir fólk loksins tilbúið að ræða jafnréttismál opinskátt.
UAK eru grasrótarsamtök sem voru stofnuð árið 2014 með það í huga að efla tengslanet kvenna og berjast fyrir jafnrétti á vinnumarkaði og jafnvægi í umræðunni. Við erum sex í stjórninni og ég tók við sem formaður á síðasta ári. Hún segir starfsemi félagsins fjölbreytta. „Ef þú ert félagskona í UAK hefurðu aðgengi að einum til tveimur viðburðum í mánuði hjá okkur, við hittumst á málstofum, höldum námskeið og reynum að fá til okkar sterkar fyrirmyndir úr atvinnulífinu því það skiptir miklu máli þegar kona er að taka fyrstu skrefin. Það er einstakt að fá tækifæri til að hitta konur sem stýra stærstu fyrirtækjum landsins og spyrja þær um reynslu þeirra og hvaða hindranir hafa verið í veginum.“ Hún segir starfsemina ganga mjög vel. „Það er mjög jákvæð umræða í samfélaginu varðandi jafnrétti og mér finnst fólk loksins vera tilbúið að ræða þessi mál opinskátt. Með tilkomu byltinga eins og #metoo og #höfumhátt og fleiri á undanförnum árum hefur opnast einhver vídd þar sem fólk kemst ekki lengur upp með að standa fyrir utan umræðuna.“ Næsti viðburður samtakanna verður í Ægisgarði 8. febrúar. „Við munum notast við Barbershop-verkfærakistu sem þróuð var fyrir UN Women árið 2015 sem hluti af #heforshe herferðinni. Verkfærakistan er notuð til að halda viðburði sem hafa það að markmiði að auka þátttöku karla í umræðunni og baráttunni fyrir kynjajafnrétti. Vinnustofan verður byggð á leiðtogaverkfæri sem miðar sérstaklega að aukinni þátttöku stjórnenda og verður þetta í fyrsta skipti í heiminum sem slík vinnustofa er haldin fyrir ungt fólk. Eðli málsins samkvæmt er best að hafa jafnt kynjahlutfall í vinnustofunni svo við hvetjum alla til að taka með sér gest af öðru kyni.“ Nánari upplýsingar má finna á uak.is.
Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Ólétt 52 ára Lífið Fleiri fréttir Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Sjá meira