Kurr í fræðasamfélaginu vegna skýrslu Hannesar Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 9. febrúar 2018 07:15 Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Vísir/Stefán
Útgáfu skýrslu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, prófessors í stjórnmálafræði, um erlenda áhrifaþætti bankahrunsins, er ekki að vænta fyrr en í fyrsta lagi með vorinu en hún er komin til Félagsvísindastofnunar og er þar í yfirlestri. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er töluverður kurr í fræðasamfélaginu um efni og innihald skýrslunnar en Hannes hefur sent þeim, sem um er fjallað í skýrslunni, afmarkaða kafla hennar til aflestrar til að gefa þeim kost á andsvörum og athugasemdum. Allmargir munu hafa fengið kafla senda og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins sýnist sitt hverjum um efni hennar. Hannes er sagður mjög gagnrýninn á niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis í skýrslunni og heimildarmenn blaðsins í fræðasamfélaginu segja ljóst að stofnunin muni þurfa að vanda yfirlesturinn til að forða henni og Háskólanum frá mögulegum málsóknum verði skýrslan gefin út í nafni stofnunarinnar.Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunnar HÍ.Vísir/AntonSkýrsluna vann Hannes á grundvelli samnings milli stofnunarinnar og fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Samkvæmt samningnum átti að skila skýrslunni sumarið 2015. „Ég er að lesa skýrsluna yfir með tilliti til verksamnings okkar við ráðuneytið og auðvitað okkar reglna um verk sem eru gefin út hjá okkur,“ segir Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar.Fyrsta lagi í apríl Aðspurð um hvenær verkinu verði lokið segir Guðbjörg yfirlesturinn töluvert verk og allavega verði ekki hægt að búast við skýrslunni á næstu vikum. „Svo er Hannes í burtu fram í apríl þannig að það yrði í fyrsta lagi þá sem hún yrði gefin út, en eins og ég segi þá bara veit ég ekki nákvæmlega hvernig þetta verður,“ segir hún. Aðspurð um útgáfu skýrslunnar segir Guðbjörg ekki hægt að svara neinu um útgáfu hennar að svo stöddu en yfirlesturinn lúti að því hvort skýrslan sé í samræmi við annars vegar verklagsreglur og siðareglur stofnunarinnar og hins vegar verksamninginn við ráðuneytið. „Við erum með þennan samning við ráðuneytið um skýrsluna og nú er bara verið að fara yfir hvort skýrslan sé í samræmi við hann. Það er ekki hægt að svara neinu á þessu stigi um það í rauninni,“ segir Guðbjörg. Hún segir vinnuna unna í góðu samráði við Hannes sjálfan. Ekki náðist í Hannes við vinnslu fréttarinnar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Sjá meira