Ekki hættuleg mengun í læknum í Hafnarfirði Hersir Aron Ólafsson skrifar 22. júlí 2018 13:43 Lækurinn í Hafnarfirði.
Ekki er talið að mengun sem fannst í læknum í Hafnarfirði á föstudag muni hafa teljandi áhrif á lífríki á svæðinu. Heilbrigðisfulltrúi segir líklegast um að ræða afgangsefni frá steypuvinnu í Setbergshverfi, en nokkur tími gæti liðið þar til lækurinn hreinsast alveg. Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis bárust fregnir af því um hádegisbil á föstudag að nokkurt magn mengandi efna streymdi í lækinn og voru fulltrúar strax sendir á staðinn. „Það uppgötvaðist að þetta var að leka í lækinn úr röri sem kemur frá Setbergshverfinu og virtist vera mikið magn. Það kom strax í ljós að þetta var ekki af olíuuppruna, hvorki eldsneyti né leysiefni, þvottaefni eða annað í þá veruna og þetta voru heldur ekki nein málningarefni,“ segir Páll Stefánsson, heilbrigðisfulltrúi hjá heilbrigðiseftirliti Kópavogs- og Hafnarfjarðarsvæðis. Því hafi fljótt verið ljóst að lekinn væri ekki sérlega alvarlegur, ef svo má segja. „Við fylgdumst vel með þessu, þetta dreifðist verulega um lækinn og fyllti alveg vatnsbolinn frá botni til yfirborðs og var mjög lengi að þynnast út, þó innstreymi væri fljótlega lokið,“ segir Páll. Ekki hefur verið hægt að rekja nákvæman upprunastað mengunarefnanna, en Páll segir myndina þó nokkuð skýra. „Þetta er að öllum líkindum annað hvort filt eða sement eða efni sem verður til við steypuvinnu eða hreinsun á húsgrunni á byggingarstað,“ segir Páll. Hann segir um að ræða mjög fín, sviflæg efni og nokkurn tíma gæti tekið fyrir vatnið að hreinsast alveg. Hins vegar megi slá því föstu að ekki sé hætta á ferðum. „Það var alveg ljóst að hvorki fuglalíf eða annað líf yrði fyrir miklu. Þetta hefur engin áhrif á fugla og á aðra hefur þetta óveruleg áhrif,“ segir Páll að lokum.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira