Golfkíkjar notaðir til að mæla sporða yfir jökullón Kjartan Kjartansson skrifar 7. mars 2018 12:45 Hagavatn við Hagafellsjökul eystri sem gengur út úr sunnanverðum Langjökli hefur myndast á síðustu rúmu hundrað árunum. Myndin var tekin úr mælingaferð árið 2007 en jökullinn hefur síðan hopað frá lóninu. Einar Ragnar Sigurðsson
Sjálfboðaliðar Jöklarannsóknafélagsins hafa í vaxandi mæli þurft að reiða sig á kíkja til að mæla sporða jökla undanfarið. Lón sem myndast hafa fyrir framan marga hopandi jökla koma í veg fyrir hefðbundnari mæliaðferðir. Í sumum tilfellum hafa golfkíkjar verið notaðir við mælingarnar. Árlegar sporðamælingar sjálfboðaliða Jöklarannsóknafélags Íslands fóru fram í haust en skýrslur um niðurstöður þeirra hafa síðan verið að skila sér í hús. Alls hafa borist upplýsingar frá 25 sporðamælistöðum. Af jöklunum sem upplýsingar liggja fyrir um eru tuttugu að hopa en tveir að ganga fram. Bergur Einarsson, jarðfræðingur hjá Veðurstofunni sem heldur utan um sporðamælingar Jöklarannsóknafélagsins, segir að jöklarnir sem ganga fram séu Heinabergsjökull sem gengur suðaustur úr Vatnajökli og ein af þremur mælistöðvum við Skeiðarárjökul. Kaldalónsjökull, sem gengur til vesturs úr Drangajökli, hopar mest af þeim jöklum sem mæling er komin frá, eða um 184 metra frá síðasta hausti.Breytileiki í stöðunni vegna jökullóna Ekki er þó víst að staða jöklanna sem hafa gengið fram gefi rétta mynd af þróun þeirra. Lón sem hafa myndast fyrir framan þá geta haft töluverð áhrif á stöðu þeirra sem endurspegla ekki þær breytingar á loftslagi sem eiga sér nú stað. Þannig geta sporðar jöklanna flotið upp eða ístungur teygt sig fram í lónunum. „Stóra myndin er ennþá sú sama, að bráðnandi jöklar í hlýnandi loftslagi þeir hopa smátt og smátt þó að alls konar óreglur komi inn í og geti valdið smá framgangi eða öðrum hreyfingum,“ segir Bergur við Vísi. Sem dæmi um sveiflur sem lón geta valdið í stöðu jökulsporða er Heinabergsjökull. Við mælingar árið 2013 hafði hann hopað um rúma 900 metra. Ári seinna hafði hann gengið aftur fram um stóran hluta þeirrar vegalengdar. Þegar dróni var notaður til að skoða jökulinn úr lofti árið 2016 kom í ljós að ísjaðarinn sem mælt hafði verið að hafi ekki verið raunverulegur sporður hans heldur jaðar ístungu sem flaut á lóninu fyrir framan jökulinn.Jökulsárlón er þekktasta jökullón á Íslandi en það byrjaði ekki að myndast fyrr en á fjórða áratug síðustu aldar.Vísir/VilhelmGömlu aðferðirnar duga ekki lengur alls staðar Lónin eru afleiðing hops jöklanna. Þegar jöklarnir stóðu framar grófu þeir hvilftir eða dali í landslagið undir sér. Þessar hvilftir stóðu eftir þegar jöklarnir hopuðu og þar hefur úrkomu- og bráðnunarvatn safnast saman og myndað lón síðustu árin og áratugina. Þekktasta dæmið er Jökulsárlón við Breiðamerkurjökul en það byrjaði að myndast upp úr 1930 þegar veður fór hlýnandi eftir lok Litlu-ísaldarinnar svonefndu. Bergur segir að lón séu nú að finna fyrir framan sporða margra skriðjökla á landinu og víðar um heim, þar á meðal við Sólheimajökul og Skeiðarárjökul. Þessi lón hafa ekki aðeins áhrif á breytileika á stöðu jökulsporðanna heldur hafa þau haft áhrif á mælingar sem hafa verið gerðar frá því í byrjun 4. áratugs síðustu aldar. Upphaflega hlóð mælingarfólk vörður fyrir framan jökulsporðana og var fjarlægðin í þær svo mæld ár eftir ár. Nýjar vörður voru hlaðnar nær jöklinum þegar vegalengdirnar voru orðnar langar. „Mæling eins og þessi gengur náttúrulega ekki upp ef það er lón á miðri leið,“ segir Bergur.Golfkíkjarnir ekki síðri en mælingar með málbandi Þess í stað hafa menn prófað sig áfram með þríhyrningamælingar yfir lónin. Bergur segir að Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu hafi verið slíkar mælingar sem verkefni í náttúrufræði fyrir nemendur þar. Þá hafa fjarlægðakíkjar verið notaðir í auknum mæli, meðal annars einn hátæknilegur frá Veðurstofunni sem nefndur hefur verið „galdrakíkirinn“ vegna nákvæmni hans. Hann getur mælt fjarlægð þvert yfir lón að jökulsporði allt að kílómetra í burtu. Ekki er þó alltaf um svo flókinn tæknibúnað að ræða. „Einhverjir sem eru að mæla styttri vegalengdir yfir lón eru bara að taka með sér venjulegan golfkíki af því að nákvæmnin í þeim mælitækjum er ekkert mikið verri en að mæla tvö hundruð metra með fimmtíu metra málbandi sem leggst á bak við alls konar steina og annað slíkt á leiðinni,“ segir Bergur.
Loftslagsmál Umhverfismál Tengdar fréttir Líklega áframhaldandi hlýnun hér á landi: „Afleiðingar loftlagsbreytinga fyrir náttúrufar og dýralíf verða mjög víðtækar“ Halldór Björnsson sérfræðingur í loftlagsbreytingum hélt í dag erindi á Umhverfisþingi í Hörpu. 20. október 2017 11:15 Hlýnun gefur og tekur frá jöklum á Tröllaskaga Jöklar á Tröllaskaga hefðu rýrnað enn meira af völdum hlýnandi veðurs en þeir hafa þegar gert ef ekki hefði komið til aukin vetrarúrkoma. Hún er einnig tilkomin vegna hlýnandi loftslags. 10. september 2017 15:00 Endurheimt votlendis gagnast takmarkað gagnvart Parísarmarkmiðunum Ísland þyrfti að jafna út losun frá framræstu landi síðasta rúma áratuginn áður en hægt væri að nýta endurheimt votlendis sem loftslagsaðgerð gagnvart Parísarsamkomulaginu. Jafnvel þá væri aðeins hægt að nýta endurheimtina að litlu leyti. 14. febrúar 2018 14:45 James Bond myndi varla þekkja aftur Jökulsárlón Á þeim aldarþriðjungi sem liðinn er frá því Jökulsárlón birtist fyrst í alþjóðlegri stórmynd hefur lónið tvöfaldast að stærð, náð að verða dýpsta vatn Íslands og jökuljaðarinn hefur skroppið saman um 3-4 kílómetra. 1. nóvember 2017 22:00 Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Erlent Fleiri fréttir Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann Sjá meira
Líklega áframhaldandi hlýnun hér á landi: „Afleiðingar loftlagsbreytinga fyrir náttúrufar og dýralíf verða mjög víðtækar“ Halldór Björnsson sérfræðingur í loftlagsbreytingum hélt í dag erindi á Umhverfisþingi í Hörpu. 20. október 2017 11:15
Hlýnun gefur og tekur frá jöklum á Tröllaskaga Jöklar á Tröllaskaga hefðu rýrnað enn meira af völdum hlýnandi veðurs en þeir hafa þegar gert ef ekki hefði komið til aukin vetrarúrkoma. Hún er einnig tilkomin vegna hlýnandi loftslags. 10. september 2017 15:00
Endurheimt votlendis gagnast takmarkað gagnvart Parísarmarkmiðunum Ísland þyrfti að jafna út losun frá framræstu landi síðasta rúma áratuginn áður en hægt væri að nýta endurheimt votlendis sem loftslagsaðgerð gagnvart Parísarsamkomulaginu. Jafnvel þá væri aðeins hægt að nýta endurheimtina að litlu leyti. 14. febrúar 2018 14:45
James Bond myndi varla þekkja aftur Jökulsárlón Á þeim aldarþriðjungi sem liðinn er frá því Jökulsárlón birtist fyrst í alþjóðlegri stórmynd hefur lónið tvöfaldast að stærð, náð að verða dýpsta vatn Íslands og jökuljaðarinn hefur skroppið saman um 3-4 kílómetra. 1. nóvember 2017 22:00