Hvasst í brekkunni á morgun Samúel Karl Ólason skrifar 4. ágúst 2018 15:39 Á morgun er spáð að vindur muni ganga í austan og vera um 13 til 18 metrar á sekúndu í Vestmannaeyjum og fylgir dálítil rigning vindinum. Vísir/Vilhelm
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland á morgun og þá sérstaklega annað kvöld, vegna strekkingsvinds. Á morgun er spáð að vindur muni ganga í austan og vera um 13 til 18 metrar á sekúndu í Vestmannaeyjum og fylgir dálítil rigning vindinum. Á vef Veðurstofunnar er fólki ráðlagt að huga að lausamunum og illa stöguðum tjöldum. Þá er einnig bent á að veðrið verður varhugavert fyrir ökutæki og ökutæki með tengivagna þar sem hviður geta farið í 25 metra á sekúndu.Annars er spáð fínu veðri um landið allt í dag.Af vef Veðurstofu Íslands: Hæg norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, skýjað en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi, en skýjað með köflum og stöku síðdegisskúrir sunnan- og vestanlands. Vaxandi austanátt á morgun, 8-15 upp úr hádegi og hvassast NV-til og syðst á landinu. Austan 15-18 syðst á landinu seint annað kvöld með rigningu eða súld á köflum. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast S- og V-lands, en heldur hlýnandi á N-landi á morgun. Á mánudag (frídagur verslunarmanna): Norðaustan 10-18 m/s, hvassast á sunnanverðu Snæfellsnesi og við SA-ströndina, en hægari vindur NA-til og á S-landi. Skýjað og dálítil rigning um landið norðan- og austanvert, en bjart með köflum SV-lands. Hiti 6 til 18 stig, hlýjast SV-lands, en svalast á annesjum á NV-landi. Á þriðjudag: Norðan 10-18, hvassast austast. Rigning á Norður- og Austurlandi, jafnvel talsverð á A-landi en skýjað með köflum sunnan- og vestanlands. Hiti 5 til 9 stig fyrir norðan, en 9 til 14 stig syðra. Á miðvikudag: Hæg norðlæg átt, 10-15 austast, en annars hægari. Dálítil rigning norðaustantil, en annars skýjað með köflum og léttir til V-lands að deginum. Hiti 4 til 8 stig NA-til, en annars 7 til 15 stig og hlýjast á S-landi. Á fimmtudag: Lægir og léttir víða til, en hægt vaxandi suðaustanátt seinnipartinn og þykknar upp SV-til. Hiti 6 til 14 stig, svalast við NA-ströndina. Á föstudag: Suðaustanátt með rigningu SV- og V-lands, en lengst af bjart NA- og A-lands. Hiti 8 til 14 stig, hlýjast NA-lands.
Veður Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira