Kári missir ekki bara af landsleikjunum heldur næstu leikjum Hauka líka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2018 12:45 Kári Jónsson skrifar hér undir saminginn með vinstri en hann er örvhentur. Brotið er því ekki á skothendinni. Vísir/Anton
Kári Jónsson verður ekki með íslenska landsliðinu í leikjunum á móti Tékklandi og Finnlandi og hann missir líka af síðustu þremur umferðunum í Domino´s deildinni. Landsliðshléið hefur mikil áhrif á Haukaliðið þar sem liðið missir nú algjöran lykilmann fyrir lokabaráttuna um deildarmeistaratitilinn. Kári Jónsson fingurbrotnaði á landsliðsæfingu. Brotið er í þumalfingrinum á hægri hendi. „Það er ennþá verið að skoða þetta aðeins betur en ég gæti verið frá keppni í um fjórar vikur. Það þýðir að ég missi af þremur síðustu leikjunum í deildinni en stefnan er að reyna að ná fyrsta leiknum í úrslitakeppninni,“ sagði Kári við mbl.is. Haukar eru með tveggja stiga forskot þegar þrjár umferðir eru eftir af deildinni en liðið á eftir að mæta Stjörnunni (7. sæti), ÍR (2. sæti) og Val (10. sæti). Kári Jónsson er með 19,8 stig og 5,1 stoðsendingu að meðaltali í leik en hann í 8. sæti í stigaskori, 5. sæti í stoðsendingum og í 10. sæti framlagi. Haukar hafa unnið 14 af 17 leikjum síðan að hann kom frá Bandaríkjunum. Meiðsli Kára rifja upp slæmar minningar fyrir Hauka en Kári meiddist í tvígang í úrslitakeppninni 2016 þegar Haukar voru með frábært lið og fóru alla leið í lokaúrslitin á móti KR.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Dagskráin: Íslensku strákarnir mæta Messi og félögum Sport Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Wiegman sendi kveðju til Íslands: „Gangi ykkur vel“ Fótbolti Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM Fótbolti Fleiri fréttir Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Sjá meira