Hringdi í lögreglu vegna innbrotsþjófs og var skotinn til bana af lögregluþjóni Samúel Karl Ólason skrifar 31. júlí 2018 15:03 Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni var mikil óreiða á vettvangi þegar lögregluþjónar komu inn í íbúðina. Mættu þeir vopnuðum manni og skaut einn lögregluþjónn þann mann, sem reyndist vera eigandi hússins, til bana. Vísir/Getty
Maður sem stóð í því að verja heimili sitt gegn innbrotsþjófi var skotinn til bana af lögregluþjóni í Colorado í Bandaríkjunum í gær. Eiginkona mannsins hringdi í lögregluna þegar þau urðu vör við innbrotsþjófinn og maðurinn tók skammbyssu sína og reyndi að reka þjófinn á brott. Þegar lögregluþjóna bar að garði heyrðu þeir skothljóð frá húsinu. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni var mikil óreiða á vettvangi þegar lögregluþjónar komu inn í íbúðina. Mættu þeir vopnuðum manni og skaut einn lögregluþjónn þann mann, sem reyndist vera eigandi hússins, til bana. Þar að auki fundu þeir látin mann og alvarlega særðan ungling. Unglingurinn mun einnig hafa verið íbúi hússins og var hann særður af innbrotsþjófnum. Lögreglan hefur ekki gefið upp nafn mannsins, né innbrotsþjófsins. Denver Post ræddi þó við nágranna mannsins sem segja ástandið verulega sorglegt. Margir eru uggandi yfir þessu og hafa beðið lögregluna um frekari upplýsingar.Maðurinn sem lögreglan skaut til bana var eldri maður á eftirlaunum og átti hann börn og barnabörn, samkvæmt nágrönnum hans. „Hann var fjölskyldumaður, afi sem var að verja fjölskyldu sína,“ sagði einn af nágrönnum hans og bætti við: „Þetta er fáránlegt.“ „Þetta er mjög sorglegt atvik fyrir alla sem að því koma,“ sagði lögreglustjórinn Nick Metz.Lögregluþjónninn hefur verið settur í tímabundið leyfi á meðan atvikið er til rannsóknar.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Sjá meira