Innlent

Segist ósáttur við framúrkeyrslu og finnur til ábyrgðar vegna Braggamálsins

Birgir Olgeirsson skrifar
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Stöð 2
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um Braggamálið svokallaða ítarlega og að hún fari vandlega yfir málið. 

„Ég held að það hafi verið mjög mikilvægt að borgarráð kallaði eftir heildarúttekt á þessu því við eigum ekki að venjast því að farið sé fram úr fjárheimildum án þess að umboðs sé leitað. Það sem vekur athygli er að það er fleira en eitt og fleira en tvennt sem fer úrskeiðis. Það er mjög margt sem er ekki eins og það á að vera. Nú bíður okkar það verkefni að fara í umbætur til að tryggja að þetta gerist ekki aftur.

Hrólfur Jónsson, fyrrverandi skrifstofustjóri eigna- og atvinnuþróunar borgarinnar, hlýtur harða útreið í skýrslunni fyrir að gæta ekki aðhalds og sinna ekki upplýsingagjöf um verkið til sinna yfirmanna. Er það niðurstaða Innri endurskoðunar að sveitarstjórnarlög voru brotin í málinu og reglur borgarinnar. Segir Innri endurskoðun Braggann hafa týnst á milli stórra verkefna og öðlast sjálfstætt líf án eftirlits.

 

Klippa: Borgarstjóri finnur til ábyrgðar í braggamálinu

Segir skýrsluna bæta litlu við um ábyrgð

Dagur var spurður að loknum kynningarfundi skýrslunnar hvort einhver þurfi að sæta ábyrgð vegna málsins.

Sagði Dagur að frá því málið komst í hámæli hafa þeir sem höfðu umsjón með verkinu gengist við ábyrgð sinni og ekki hafi bæst mikið við það í skýrslunni.

„En þó lítur þetta ekki bara að einstaklingum eða embættum heldur líka þeim ferlum sem við höfum til að gefa borgarstjóra og borgarráði glögga mynd af því ef það stefnir í framúrkeyrslu. Þarna eru ýmis umbótarverkefni sem við sjáum fyrir okkur að þurfi að ráðast í til að stjórnsýsla Reykjavíkurborgar varðandi utanumhald um öll verkefni sé til fyrirmyndar.“

Bragginn í Nauthólsvík.Vísir/Vilhelm

Finnur til ábyrgðar

Dagur sagðist aðspurður finna til ábyrgðar. 



„Ég er æðsti embættismaður borgarinnar. Ég er ekki sáttur þegar verkefni fara fram úr og ég finn til ábyrgðar gagnvart því að þetta verði ekki bara einhver skýrsla um Nauthólsveg 100 heldur að við förum nú saman, ég, formaður borgarráðs og fulltrúi minnihlutans, í það að gera tillögur að nauðsynlegum umbótum þannig að við lærum af þessum og tryggjum að svona gerist ekki aftur.“

Spurður hvort hann telji að álíka mál eigi sér stað í borgarkerfinu þessa stundina sagði Dagur borgaryfirvöld fara reglulega yfir fjárfestingar. 

„Og eitt af því sem þessi umræða hefur leitt af sér, ekki bara hjá borginni, heldur líka hjá ríkinu og mjög víða, er að framúrkeyrslur og kostnaðareftirlit er mjög mikið í umræðunni. Ég finn fyrir miklum metnaði hjá borgarráði og öllum borgarfulltrúum og borgarkerfinu að fara yfir mál. Við vitum að það getur komið upp að eitthvað óvænt gerist og það þarf að verja meira fé en áætlað var í upphafi en þá er mikilvægt að sækja heimildir til þess, útskýra hvers vegna og gefa þeim sem hafa endanlegt fjárstjórnarvald tækifæri  til að kalla eftir endurskoðuðu áætlunum, einhverri nýrri stefnu eða jafnvel að segja stopp.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×